• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Lögreglan með hefðbundið eftirlit um verslunarmannahelgina

Innbrotsþjófar fylgjast gjarnan með húsum áður en þeir láta til skarar skríða

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
30. júlí 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu verður með hefðbundið eftirlit um verslunarmannahelgina eins og jafnan áður. Áherslan í sumar hefur m.a. verið á eftirlit með hraðakstri, notkun farsíma við akstur án handfrjáls búnaðar, ferðavögnum/eftirvögnum og hættulegum framúrakstri. Það er ánægjulegt að sjaldnast hefur verið ástæða fyrir lögreglu til að kæra fyrir vanbúnað eftirvagna/ferðavagna, en í nokkrum tilvikum hefur ökumönnum verið bent á atriði sem þeir þurfa að laga, t.d. að framlengja hliðarspegla þegar ökutæki draga breiða eftirvagna.
Því miður eru líka alltaf einhverjir sem leyfa sér að virða ekki reglur um hámarkshraða, auk þess að nota farsíma án handfrjáls búnaðar við akstur en ekki þarf að fjölyrða um þá hættu sem það skapar í umferðinni. Flestar aðfinnslur gátu ökumenn lagað á vettvangi eða ábendingarnar fóru með ferðalöngunum sem gott veganesti. Í flestum tilvikum virðast ferðalangar því huga vel að ástandi ferðavagna/ökutækja og passa að fyllsta öryggis sé gætt. Ekki má heldur gleyma mikilvægi þess að þeir sem eru með ferðavagna/eftirvagna í eftirdragi virði reglur um hámarkshraða, en þeir geta nú ekið á allt að 90 km hraða þar sem slíkt er leyfilegt á þjóðvegi, en þá er miðað við bestu aðstæður og nauðsynlegt að hafa það í huga.
Veðurspáin fyrir þessa verslunarmannahelgi er annars misgóð eftir landshlutum, en ferðalangar eru hvattir til að kynna sér veðurspár í þaula áður en lagt er af stað. Auk aksturs á löglegum hraða er líka nauðsynlegt að ökumenn og farþegar spenni beltin og að sjálfsögðu eiga allir ökumenn að vera allsgáðir. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetur alla vegfarendur til þess að sýna þolinmæði, sem er ómissandi í umferðinni, og gæta skal sérstakrar varúðar við framúrakstur. Með ósk um velfarnað í umferðinni.

Jafnframt þessu verður haldið úti eftirliti í hverfum í umdæminu og því vill lögreglan ítreka að fólk láti vita um grunsamlegar mannaferðir (taki ljósmyndir ef slíkt er mögulegt) og að það skrifi líka hjá sér, t.d. bílnúmer eða jafnvel lýsingar á fólki, ef eitthvað óvenjulegt á sér stað í nánasta umhverfi þess. Innbrotsþjófar fylgjast gjarnan með húsum áður en þeir láta til skarar skríða, hringja jafnvel dyrabjöllunni og þykjast vera að spyrja eftir einhverjum, og því er mikilvægt að hafa þessi atriði í huga. Munið að það er betra að hringja einu sinni of oft í lögregluna með upplýsingar af þessu tagi en einu sinni of sjaldan.

Lögreglan vill ennfremur minna á mikilvægi þess að fólk gangi tryggilega frá heimilum sínum, t.d. að loka gluggum, þegar það fer að heiman og ekki er úr vegi að tilkynna nágrönnum um slíkt, en nágrannavarsla getur skipt sköpum þegar kemur að því að upplýsa innbrot eða koma í veg fyrir þau. Sérstaklega er minnt á að útiljós séu kveikt þar sem þau eru til staðar, hvort sem um ræðir bakatil við hús eða að framanverðu. Slíkt einfaldar nágrönnum að sjá umferð/mannaferðir við húsin. Sömuleiðis er mikilvægt að fólk upplýsi ekki um fjarveru sína fyrir allra augum þegar farið er í frí, t.d. með tilkynningu á samfélagsmiðlum. Lögreglan verður með hefðbundið eftirlit um verslunarmannahelgina, en áhersla verður lögð á að fylgjast með íbúðarhúsnæði eins og kostur er.
Upplýsingum má koma á framfæri í síma 444 1000 eða í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is Ef óskað er eftir skjótri aðstoð lögreglu vegna yfirstandandi innbrots skal undantekningarlaust hringja í 112.
Að síðustu er minnt á reglur vegna Covid-19, sem gilda til og með 13. ágúst, og er fólk beðið um að fylgja þeim í einu og öllu, ekki síst er varðar almennar fjöldatakmarkanir, grímuskyldu og nándarmörk.
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    208 deilingar
    Share 83 Tweet 52
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?