• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 18. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Umferðareftirlit úr þyrlu í samstarfi við Landhelgisgæsluna

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
30. júlí 2022
in Ferðaþjónusta, Fréttir, Innlent
A A
0

Tiltölulega rólegt var hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra í gær, miðað við oft áður um þessa stóru ferðahelgi. Þó var gærdagurinn og nóttin á köflum erilsöm en engin stórheit.

Svona er staðan á svæðinu í kring um Öskju. Kalt er á hálendinu í umdæminu og förum því vel klædd og á vel búnum bílum ef fyrirhuguð er ferð þangað.

Í gær hafði lögregla afskpti af manni sem lét ófriðlega í bílaleigu Brimborgar á Akureyri. Lögreglumenn náðu að leysa málið á staðnum en það tók drykklanga stund og þurfti að taka manninn tökum og færa hann út úr húsnæði Brimborgar. Maðurinn var afar reiður en lögreglumönnum tókst að róa hann og leysa málið á fagmannlegan hátt án eftirmála.

Lögregla aðstoðaði vegna umferðaróhappa, aðstoðaði sjúkralið vegna sjúkraflutninga, hafði afskipti í nokkur skipti vegna ölvunar og hávaða og ónæðis. Lögregla er með aukinn viðbúnað um helgina varðandi umferðareftirlit og við erum mikið á ferðinni um umdæmið. Meðal annars var umferðareftirlit úr þyrlu í gær í samstarfi við Landhelgisgæsluna og þökkum við kærlega fyrir það. Um tuttugu voru kærðir í gær fyrir umferðarlagabrot, hraðakstur og önnur brot og eru samtals brot á umferðarlögum nær þrjátíu.

Lögregla aðstoðaði vegna hópamyndunar og ölvunar við Sjallann á Akureyri í nótt og náðist að leysa það upp áður en til mikilla átaka kom. Slagsmál brutust síðan út á Ráðhústorgi við veitingastaðinn Vamos utandyra og síðan var veist að dyraverði þar innandyra og ráðist á hann. Málið er í rannsókn. Tveir voru teknir í nótt vegna ölvunar- og vímuefnaaksturs og einn fyrir að flytja farþega án öryggisráðstafana, í skotti bifreiðar. Fleiri afskipti voru af ölvuðum einstaklingum og í einhverjum tilfellum fær barnavernd að frétta af þeim afskiptum. Heilt yfir voru menn þó að skemmta sér prúðmannlega en segja má þó eins og svo oft áður að ,,ölvun var allnokkur“. Í dag eru ýmsir viðburðir á dagskrá hér um slóðir og vonum við að allt gangi sem best og allir komist heilir heim.

 

Umræða
Share1Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    89 deilingar
    Share 36 Tweet 22
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    185 deilingar
    Share 74 Tweet 46
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    132 deilingar
    Share 53 Tweet 33
  • Innflytjendur kosta hundrað milljarða á ári – Opin landamæri Schengen

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?