Iðnaður á Íslandi er afar fjölþættur og skapar um 41% útflutningstekna þjóðarinnar. Endurspeglar IÐNAÐARSÝNINGIN 2025 þessa breidd og verður hún með stærri sýningum hér á landi en á annað hundrað fyrirtæki kynna vörur og þjónustu.
IÐNAÐARSÝNINGIN 2025 er haldin af sýningarfyrirtækinu Ritsýn sf. sem hefur í 28 ár sérhæft sig í fagsýningum og má þar helstar nefna auk iðnaðarsýninga; landbúnaðar-, heilsu-, stóreldhúsa- og sjávarútvegssýningar.
Samtök Iðnaðarins eru samstarfsaðili sýningarinnar en innan samtakanna eru um 1.400 fyrirtæki er sýnir stærð iðnaðargeirans hér á landi.
Á IÐNAÐARSÝNINGUNNI 2025 verður meðal annars lögð áhersla á að kynna mannvirkjagerð, orku, innviði, vistvænar lausnir og hönnun. Sýningin mun höfða bæði til fagmanna og almennings.
- IÐNAÐARSÝNINGIN 2025 verður opin:
Fimmtudaginn 9. október frá kl. 14.00 til 19.00
Föstudaginn 10. október frá kl. 10.00 til 18.00
Laugardaginn 11. október frá kl. 10.00 til 17.00
Iðnaður skapar rúmlega fimmtung landsframleiðslunnar
Á vef Ritsýnar sf. kemur fram að Iðnaðarsýningin 2023 hafi heppnast einstaklega vel og var aðsókn mikil og básar glæsilegir og að IÐNAÐARSÝNINGIN 2025 verði haldin í Laugardalshöllinni 9.-11. október og að helstu svið sýningarinnar í ár verði: mannvirki, orka, innviðir, hönnun og vistvænar lausnir.
Iðnaður sé mjög stór hluti hagkerfis okkar. Samkvæmt hagtölum skapar hann rúmlega um fimmtung landsframleiðslunnar. Og þá er aðeins rætt um beint framlag til landsframleiðslunnar. Hið óbeina framlag er mun meira. IÐNAÐARSÝNINGIN 2025 spannar hið víða svið iðnaðar hvort sem er á sviði mannvirkja, orku, framleiðslu, hugverka eða grænna lausna svo eitthvað sé nefnt. Slík sýning á erindi við landsmenn hvort sem þeir starfa eða tengjast iðnaðarsviðinu.
IÐNAÐARSÝNINGIN 2025 er unnin í samstarfi við Samtök Iðnaðarins.