Hugleiðingar veðurfræðings
Í dag má búast við sunnan strekkingi víða um land með vætusömu veðri, ýmist skúraklakkar eða stærri úrkomusvæði með samfelldri rigningu um tíma. Hiti 7 til 12 stig. Lítil eða engin úrkoma norðaustantil þegar kemur fram á daginn og þar verður jafnframt hlýjast, eða 14-15 stig þegar best lætur.
Á morgun er útlit fyrir minni vind en í dag, nema austanlands, þar blæs enn af svipuðum styrk og í dag. Áfram vætusamt og má búast við að vætan nái í alla landshluta á morgun. Á fimmtudag er ennþá spáð suðlægri átt, ýmist gola eða kaldi. Í norðausturfjórðungnum ætti að vera þurrt og bjart veður, en í öðrum landshlutum má búast við skúrum. Spá gerð: 30.09.2025 06:44. Gildir til: 01.10.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu
Sunnan 8-15 m/s í dag og rigning eða skúrir, en þurrt á norðaustanverðu landinu eftir hádegi. Yfirleitt hægari vindur á morgun, þó áfram sunnan strekkingur austanlands. Væta með köflum víða um land. Hiti 7 til 14 stig, hlýjast norðaustantil. Spá gerð: 30.09.2025 07:36. Gildir til: 02.10.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Sunnan 3-10 m/s og skúrir, en yfirleitt þurrt og bjart á norðaustanverðu landinu. Hiti 6 til 12 stig.
Á föstudag:
Fremur hæg austlæg átt, skýjað með köflum og stöku skúrir. Hiti 5 til 10 stig. Vaxandi norðanátt um kvöldið og fer að rigna austanlands.
Á laugardag:
Norðan og norðvestan 8-15, en hægari norðvestantil. Dálítil rigning um tíma, en þurrt á Suður- og Vesturlandi. Lægir um kvöldið. Hiti 3 til 10 stig yfir daginn, mildast syðst.
Á sunnudag:
Snýst í suðaustanátt og fer að rigna, en þurrt norðaustanlands. Hlýnar heldur norðantil.
Á mánudag:
Útlit fyrir suðlæga átt með rigningu eða skúrum.
Spá gerð: 30.09.2025 08:18. Gildir til: 07.10.2025 12:00.

