Hæstiréttur dæmdi nú rétt í þessu Freyju Haraldsdóttur í vil í máli sem hún höfðaði gegn Barnaverndarstofu. Hæstiréttur staðfesti því dóm Landsréttar frá því í mars um Barnaverndastofu væri óheimilt að hafna umsókn Freyju um að taka að sér fósturbarn án þess að gefa henni kost á að sækja námskeið fyrir fólk sem hefur áhuga á að taka að sér fósturbörn. Niðurstaðan var þvert á dóm Héraðsdóms Reykjavíkur, sem sýknaði Barnaverndarstofu.
Barnaverndarstofa óskaði eftir heimild til að áfryja til Hæstaréttar. Stofnunin byggði á því að málið varðaði mikilvæga hagsmuni barna sem setja þyrfti í varanlegt fóstur. Rúv fjallar fyrst um málið og þar segir jafnframt:
,,Barnaverndarstofa taldi enn fremur að dómur Landsréttar væri rangur þar sem litið hefði verið framhjá meginmarkmiðum barnaverndarlaga, 76. grein stjórnarskrárinnar og samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, um að hagsmunir barna skuli ávallt skipta mestu þegar teknar séu ákvarðanir sem varði þau. Hæstiréttur taldi að dómur í þessu máli myndi hafa verulegt almennt gildi um skýringu reglna á sviði stjórnskipunarréttar, stjórnsýsluréttar og barnaréttar. Var beiðni Barnaverndarstofu því tekin til greina.
Freyja ræddi málið við útvarpsþáttinn Lestina á Rás 1 í síðustu viku. Þar kom fram að dómsmálið snúist ekki um að umsókn Freyju um verða fósturforeldri hafi verið hafnað heldur að hún eigi rétt á hefðbundnu matsferli áður en slík ákvörðun hafi verið tekin.“