Þrír eru í haldi Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir að grunsamlegur hlutur fannst í ruslagámi í Mánatúni í Reykjavík á fjórða tímanum í nótt.
Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð til aðstoðar vegna málsins.
Rannsókn málsins er á frumstigi og ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.
Discussion about this post