Lögreglan á Suðurnesjum hefur í þessari viku farið í tvö útköll vegna meðvitundarleysis ungmenna, þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar.
Í báðum tilvikum er grunur um að ólöglegt vímuefni hafi verið í svokölluðu „vape“i . Sem betur fer hlaut enginn alvarlegan skaða af en lögreglan ítrekar hættuna af notkun slíkra efna sem og að nota vape sem við vitum ekki hvað er í.
Discussion about this post