• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Sunnudagur, 24. september 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Heildarvelta erlenda ferðamann jókst um rúm 23%

ritstjorn by ritstjorn
30. desember 2022
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
0
Share on FacebookShare on Twitter

Ferðamálastofa hefur birt greiningu á þróun tekna af erlendum ferðamönnum innanlands á fyrstu 10 mánuðum ársins, með samanburði við sama tímabil síðasta ár fyrir Covid, 2019. Greininguna má nálgast á vefslóðinni að neðan.

https://infogram.com/1pk2rxrgwz0wprf9x6r67wnwvea59zv77v?live

Þrátt fyrir ríflega 16% fækkun erlendra ferðamanna mánuðina janúar- október á þessu ári samanborið við sama tíma 2019, var metin greiðslukortavelta þeirra innanlands rúmlega 3% meiri, mæld í krónum. Það vekur þá áhugaverðu spurningu hvort ferðamönnum í kjölfar Covid sé lausara veskið en ferðamönnum fyrir faraldur. Talsvert hefur verið fjallað um að uppsafnaður sparnaður og ferðalöngun fólks á Covid-tímanum kunni að hafa leitt til meiri eyðsluvilja ferðalanga fyrst um sinn eftir að hömlur á ferðalög voru losaðar.

Samkvæmt fyrirliggjandi tölulegum upplýsingum fyrir fyrstu 10 mánuði þessa árs og ársins 2019 er ástæða meiri veltu erlendra ferðamanna hér á landi í ár, þrátt fyrir fækkun þeirra, fyrst og fremst sú að þeir hafa að meðaltali dvalið degi lengur á þessu ári, 7,7 daga í stað 6,7 – um 14% lengri tíma.

Heildarvelta á hvern erlendan ferðamann jókst um rúm 23% frá 2019 á fyrstu tíu mánuðum ársins á nafnverði í krónum. Á hvern dvalardag nam aukningin hins vegar aðeins rúmum 8%. Leiðrétt fyrir verðlagshækkunum frá 2019 er raunsamdráttur í veltu ferðamanna á hvern dvalardag upp á tæp 7%. Skoðað í helstu
heimamyntum ferðamanna hvort árið um sig nemur samdrátturinn á hvern dvalardag um 8%.

Umfjöllun um þetta og fleira áhugavert um þróun tekna ferðaþjónustu á Íslandi af erlendum ferðamönnum má sjá í meðfylgjandi greiningu.

  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Tugmilljóna króna okurlán á Íslandi

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Verð í Fríhöfninni – Allt að 43% dýrari á leiðinni heim

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Ef þetta er rétt vantar um 20 milljarða í íslenskt hagkerfi á hverju ári“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Bubbi er ósáttur

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Um stöðu og aðstæður foreldra sem ekki deila lögheimili með barni

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?