• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 30. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

Fuglainflúensa í refi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
31. janúar 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0
Tilkynningum sem berast Matvælastofnun um dauða og veika villta fugla hefur fækkað. Fuglainflúensa hefur ekki greinst í þeim sýnum úr fuglum sem rannsökuð hafa verið síðustu daga. Aftur á móti greindist fuglainflúensa H5N5 í sýni sem tekið var úr refi í Skagafirði í þessari viku.

Matvælastofnun telur ekki tímabært að álykta að sýking í villtum fuglum sé í rénun og biður fólk að vera áfram vakandi fyrir sjúkdómseinkennum í fuglum og að tilkynna stofnuninni um veika og dauða fugla sem það sér.

Í gær bárust Matvælastofnun niðurstöður rannsókna Tilraunastöðvar HÍ að Keldum á sýnum sem tekin voru úr refi sem aflífaður var í Skagafirði fyrr í vikunni. Íbúi sá refinn og tók eftir að hann var augljóslega veikur; mjög slappur, hreyfði sig lítið og var valtur á fótunum. Tilkynnt var um refinn til Matvælastofnunar, reyndar refaskyttur voru fengnar til að aflífa hann, hræið sent til rannsókna á Keldum og greindist hann með fuglainflúensu af gerðinni H5N5. Í ljósi þessa vill Matvælastofnun biðja fólk að vera líka vakandi fyrir sjúkdómseinkennum eða óeðlilegri hegðun í refum og senda stofnuninni tilkynningu ef það verður vart við veika eða dauða refi.

Rétt er að benda á að fleiri spendýr, svo sem rottur og mýs, geta líka smitast af fuglainflúensu, þótt veiran hafi ekki greinst hingað til í þessum dýrategundum hér á landi. Því miður kemur fyrir að fólk tekur mýs og heldur þær í búrum innanhúss. Matvælastofnun vill benda á að það er varasamt vegna smithættu, auk þess sem það er óheimilt samkvæmt lögum um velferð dýra og það sama á við um öll önnur villt dýr. Ef vart verður við óeðlilegan dauða í músum og rottum skal það tilkynnt til Matvælastofnunar.

Skilaboð til katta- og hundaeigenda eru að smithætta er enn til staðar og því æskilegt að þeir reyni áfram að koma í veg fyrir að dýr þeirra fari í veika eða dauða villta fugla eða spendýr.

Tilkynna skal um veik eða dauð villt spendýr og fugla til Matvælastofnunar með því að smella á hnappinn „ábendingar og fyrirspurnir“ efst á heimasíðu stofnunarinnar (www.mast.is). Mikilvægt er að tilkynningunni fylgi nákvæmar upplýsingar um staðsetningu og best er að skrá hnit staðarins. Nauðsynlegt er að taka fram hvaða fugla- eða dýrategund er um að ræða og/eða láta mynd fylgja með tilkynningunni.

Minnt er á mælaborð um fuglainflúensu á heimasíðu Matvælastofnunar. Mælaborðið hefur verið uppfært og má þar nú finna upplýsingar um allar tilkynningar auk upplýsinga um sýnatökur og niðurstöður rannsókna eins og áður.

Ítarefni

Upplýsingasíða Matvælastofnunar um fuglainflúensu

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?