Viðtöl og fyrirtökur gegnum fjarskipti heimiluð
Dómsmálaráðherra hefur undirritað breytingar á tveimur reglugerðum, annars vegar reglugerð um breytingu á reglugerð um stjórnsýslumeðferð hjúskaparmála nr. 230/1992 og hins vegar reglugerð um breytingu á reglugerð um stjórnsýslumeðferð skv. barnalögum nr. 231/1992. Breytingarnar á reglugerðunum sem öðlast þegar gildi, miða að því að gera sýslumönnum kleift að bjóða upp á fyrirtökur og viðtöl í gegnum síma, fjarfundabúnað eða annað fjarskiptatæki.
Með breytingunum er verið að bregðast við núverandi stöðu í samfélaginu og leita leiða til að fækka heimsóknum á sýsluskrifstofur landsins með notkun tækninnar við málsmeðferð í þeim málum sem falla undir barnalög og hjúskaparlög. Þeim breytingum sem lagðar eru til er fyrst og fremst ætlað að beita í undantekningartilvikum vegna þessara sérstakra aðstæðna.
Breytingar á reglugerð um stjórnsýslumeðferð hjúskaparmála má finna hér. Breytingar á reglugerð um stjórnsýslumeðferð skv. barnalögum má finna hér.
Reglugerð um breytingu á reglugerð um stjórnsýslumeðferð hjúskaparmála: https://www.stjornartidindi.is/Advert.aspx?RecordID=f28305ff-e311-43cd-bdac-79be0ace50bb
Reglugerð um breytingu á reglugerð um stjórnsýslumeðferð skv. barnalögum: https://www.stjornartidindi.is/Advert.aspx?RecordID=6db29a28-7b38-48e7-98a4-3903038b94d2