• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Aðildarfélög BSRB undirrita kjarasamninga

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
31. mars 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0

Aðildarfélög BSRB hafa náð samkomulagi um launahækkanir og kjarabætur fyrir starfsfólk í almannaþjónustu við ríki og Reykjavíkurborg. Um skammtímasamninga er að ræða sem gilda í tólf mánuði frá 1. apríl 2023.

Forsvarsfólk fjórtán aðildarfélaga BSRB undirrita í kjölfarið kjarasamningana í húsi Ríkissáttasemjara en undir þau falla um 14 þúsund félagsmenn. Stéttafélagið Sameyki hefur þegar undirritað sína samninga við ríki og borg.

Samningarnir fara nú í kynningu og í kjölfarið í atkvæðagreiðslu í félögunum sem lýkur 14. apríl.

„Leiðarljós okkar í þessum viðræðum var að verja kaupmátt starfsfólks í almannaþjónustu, enda er verðbólgan farin að bíta almenning verulega og langt síðan fólk á almennum vinnumarkaði fékk sínar kjarabætur. Við fögnum því að kjarasamningur taki við af kjarasamningi svo launafólk fái ávinninginn af samningunum strax í vasann 1. maí. Rétt eins og á almenna markaðinum er um skammtímasamninga að ræða og svo hefst fljótlega undirbúningur fyrir gerð langtímakjarasamninga hjá aðildarfélögum BSRB. Kröfur okkar munu ekki eingöngu beinast að launagreiðendum heldur einnig stjórnvöldum. – sagði Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.

Stéttafélögin sem hafa undirritað samninga eru:

Félag flugmálastarfsmanna ríkisins

Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi

FOSS – stéttafélag í almannaþjónustu

Félag starfsmanna stjórnarráðsins

Kjölur, stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu

Landssamband lögreglumanna

Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna

Sameyki – stéttarfélag í almannaþjónustu

Sjúkraliðafélag Íslands

Starfsmannafélag Garðabæjar

Starfsmannafélag Kópavogs

Starfsmannafélag Húsavíkur

Starfsmannafélag Suðurnesja

Starfsmannafélag Vestmanneyja

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    211 deilingar
    Share 84 Tweet 53
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    46 deilingar
    Share 18 Tweet 12
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?