• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 14. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

Þröstur Leó Gunnarsson

,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

Þröstur Leó Gunnarsson flytur ávarp

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
31. maí 2025
in Aðsent & greinar, Afþreying
A A
0

,,Þetta þurfti ekki að fara svona“

Sjómannadagshelgin er nú um helgina og sjómannadagurinn sjálfur er á sunnudaginn en dagurinn hefur í seinni tíð verið nefndur hátíð hafsins. Enda margar sjávarbyggðir verið sviptar kvóta, eignum, lífsviðurværi, atvinnufrelsi og sjómönnum. Þröstur Leó flutti ræðu á síðasta sjómannadag sem á enn vel við og hægt er að hlusta á hana í spilaranum hér að ofan eða lesa hér að neðan: 

Sjómannadagurinn 2022 – Ávarp óþekkta sjómannsins

Þröstur Leó Gunnarsson flytur ávarp óþekkta sjómannsins fyrir hönd fólksins í landinu. Sjómannadagurinn 2022, 12. júní. „Ágætu landsmenn og félagar mínir á sjó – og ekki síður þeir sem eru í landi, þeir sem hafa hrakist í land og þeir sem eru að reyna að draga fram lífið á strandveiðum, allir þeir sem þrá að starfa sem sjómenn og hafa til þess reynslu og getu en eiga ekki neinn kvóta, mega ekki róa því þeir eiga ekki fiskinn … sem ætti auðvitað ætti að eiga sig sjálfur, en sem er nú skráður og þinglýstur sem eign Samherja og félaga. Gleðilegan sjómannadag þið öll. Skálum fyrir draumi okkar um frelsið út á sjó.

Skálum fyrir drauminum um að geta fiskað og með tímanum stækkað bátinn og jafnvel eignast vinnslu í landi, byggt saman upp betra þorp eða betri bæ .. betra land. Skálum fyrir frelsinu sem er horfið og gleymt. Það var gefið öðrum en ykkur. Skálum fyrir þeim tíma þegar maður gat rifið kjaft og þótt maður væri rekinn gat maður alltaf fundið annað pláss. Skálum fyrir þeim tíma þegar sjómenn létu í sér heyra og áttu öflug félög sem höfðu áhrif, beygðu sig ekki fyrir valdi stórútgerðarinnar sem í dag ræður öllu. Fjandinn hirði það pakk. Ef hann hefur lyst á því. Það er illur yfirboðari sem kúgar fólk með launatékkanum, hótar fólki að svipta það lífsafkomunni. Það er sannarlega skítapakk, Skálum fyrir öllum þeim sjómönnum sem byggðu upp fiskveiðar hringinn í kringum landið, tóku þátt í því að lyfta Íslandi upp úr fátækt og opnuðu fyrir nútímanum; frelsuðu fólk frá örbirgð, hleyptu inn framförum og velsæld.

Skálum fyrir öllum þeim sjómönnum sem fórnuðu lífi sínu við að teygja sig eftir betri afkomu fyrir sig og sitt fólk … og í leiðinni fyrir samfélagið allt. Leiðinlegt að enginn sjómaður hafi fengið veiðirétt, aðeins útgerðarmenn. Það svíður í hjartað, er bölvað óréttlæti. Að framlag þeirra hafa verið einskis virt. Kynslóð fram að kynslóð, sjómenn sem byggðu upp sjávarbyggðir um allt land. Skálum fyrir þeim sem börðust svo við gætum fært út landhelgina, tryggt að afraksturinn af fiskimiðunum færi til að byggja hér upp gott og heilbrigt samfélag. Það er ekki við þetta fólk að sakast þótt allt hafi farið á annan veg, að aðeins örfáir hafi eignast fiskimiðin og noti þau nú til að auðgast og auka enn völd sín … og séu að breyta Íslandi í verstöð sem þau eiga ein. Verstöð þar sem við erum bara verbúðarfólk og verðum að standa og sitja eins og þau segja.

Skálum líka fyrir stjórnmálafólkinu sem studdi sjómenn. Skálum fyrir þeim tíma að sjómenn voru á framboðslistum flokka. Skálum fyrir hugmyndinni um stjórnmálafólk sem vinnur fyrir almenning en ekki aðeins fyrir hin valdamiklu og ríku. Skálum fyrir sjávarútvegsstefnu sem þjónar samfélaginu en ekki aðeins örfáum auðmönnum. Látum okkur dreyma á sjómannadaginn um stjórnvöld sem endurheimta fiskimiðin og gefa þjóðinni þau aftur svo arðurinn af þeim geti orðið grunnur að góðu samfélagi. Látum okkur dreyma. Látum okkur dreyma á sjómannadaginn um hátíðarhöld sem ekki eru kostuð af Brim eða Samherja, þar sem þetta er hátíðisdagurinn okkar og baráttudagurinn okkar en ekki þeirra sem hafa sölsað undir allt erfiði okkar.

Sjómannadagur sem stórútgerðin heldur hátíðlegan er dagur sem fagnar ástandinu eins og það er; fagnar því að fiskimiðin hafi verið einkavædd, að þau séu eign manna sem nota auð sinn til að auka völd sín og auka þannig enn auð sinn. Þeir fagna því að hafa beygt fólk undir sig, fagna því að hafa þaggað niður í sjómönnum. Sjómannadagur stórútgerðarinnar er sigurhátíð hinna fáu yfir fjöldanum. Sá dagur er ekki okkar dagur. Þess vegna sit ég hér og bölva.

Þetta þurfti ekki að fara svona. Kerfið sem við búum við er mannana verk og þess vegna gætum við haft það allt öðruvísi, haft það eins og við viljum … og eins og þjóðin vill; því þjóðin vill svo sannarlega ekki að örfáar fjölskyldur eigi fiskimiðin og reki sjávarútveginn eins og alræðisríki hinna fáu og freku. Þjóðin á sama draum og við sjómenn, að þegar við siglum út á sjó séum við að sigla inn frjálsan heim þar sem allir eru jafnir og hafa sömu tækifæri en ekki inn í myrka veröld þar sem einn á allt en hinir ekkert.

Gleðilegan sjómannadag kæru vinir. Ekki sjómannadag stórútgerðarinnar heldur daginn okkar. Ef við stöndum saman munum við geta glaðst innilega á komandi sjómannadögum. Og á öllum dögum. Skál fyrir því.“

https://gamli.frettatiminn.is/17/02/2022/28-ara-i-utgerd-med-um-1000-tonna-kvota/

Umræða
Share226Tweet141
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Níu handteknir vegna innflutnings á kókaíni

    Lögreglan rannsakar alvarlegt atvik á hóteli – Einni hæð hót­els­ins lokað af sér­sveitinni

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Húsleit í miðborginni

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Látinn eftir stórfellda líkamsárás

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Þögn vegna ótta – Umræða sem íslendingar þora ekki að taka

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Andlegu málin með Gísla Hvanndal: Katrín Lind Hönnudóttir miðill og heilari

    45 deilingar
    Share 18 Tweet 11
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?