Á árinu 2025 hefur dómsmálaráðuneytið haft fjármál embættis ríkislögreglustjóra til athugunar í samræmi við yfirstjórnunar- og eftirlitshlutverk sitt.
Ráðuneytið hefur verið í markvissri vinnu frá því að rekstrarniðurstaða embættis ríkislögreglustjóra vegna ársins 2024 lá fyrir. Í þeim tilgangi hefur ráðuneytið óskað eftir upplýsingum, haldið fundi með embættinu og farið yfir tillögur og aðgerðir til að bregðast við rekstrarvandanum.
Í maí sl. ákvað ráðuneytið að fá utanaðkomandi aðila til þess að greina rekstur og fjármál embættisins. Úttektin var afhent ráðuneytinu í október.
Í framangreindri úttekt á rekstri embættis ríkislögreglustjóra kemur fram að rekstrarhalli hafi verið mikill á árinu 2024 og stefni í mikinn halla á árinu 2025. Embættið þurfi að lækka útgjöld í samræmi við tekjuramma. Þá segir í úttektinni að verkefnið í rekstri ríkislögreglustjóra sé að ná jafnvægi í rekstri embættisins.
Borist hafa upplýsingabeiðnir frá fjölmiðlum vegna framangreindrar úttektar. Hefur minnisblaðið verið afhent viðkomandi fjölmiðlum á grundvelli upplýsingalaga og er í kjölfarið birt hér. Þá eru viðbrögð embættis ríkislögreglustjóra við minnisblaðinu einnig hér að neðan.
Ráðherra óskar eftir skýringum
Þá hefur dómsmálaráðherra sent embætti ríkislögreglustjóra bréf í kjölfar umfjöllunar fjölmiðla um kostnað embættisins vegna viðskipta við félagið Intra ráðgjöf. Í bréfinu óskar ráðherra eftir gögnum og skýringum vegna viðskipta embættisins við ráðgjafafyrirtækið sem og upplýsinga um umfang kaupa á ráðgjöf og þjónustu sérfræðinga og ráðgjafa ásamt greiðslum til verktaka. Þá er jafnframt kallað eftir upplýsingum um það hvort embættið hafi innt af hendi greiðslur sem eru umfram viðmiðunarmarka vegna útboða og þá hvort útboðs hafi verið leitað.
„Traust til lögreglunnar er grundvallaratriði. Það byggir á gagnsæi og góðum vinnubrögðum, þar á meðal ábyrgri meðferð opinbers fjár. Það er bæði eðlilegt og nauðsynlegt að kalla eftir skýringum. Þá er hægt að leggja mat á þær upplýsingar sem liggja fyrir,“ Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.
Ráðherra hefur óskað eftir því að umbeðin gögn og upplýsingar berist ráðuneytinu eins fljótt og auðið er og ekki síðar en 5. nóvember.

