Maður sem var að vinna við endurbætur á húsi sínu s.l. fimmtudag, fann óvænt lík í þeim hluta hússins sem hann var að endurnýja. Tilkynnti hann lögreglunni að hann hefði fundið látinn einstakling í húsi sínu sem er í Borkenes í Troms fylki í Norður Noregi.
Maðurinn var strax yfirheyrður vegna málsins en fram hefur komið að lögreglan hefur hingað til ekki getað borið kennsl á líkið. Þeir geta heldur ekki sagt neitt um kyn þess og fram hefur komið að ,,lögreglan hefur heldur enga grunaðan í málinu“ segir Frank M. Slettan, yfirlögregluþjónn“.
Eigandi hússins segir frá því að fjölskylda hans hafi búið í húsinu í nokkur ár en þau fluttu inn árið 1990 og vill hann ekki veita frekari upplýsingar til fjölmiðla.
Nágranni fjölskyldunnar, Trude Cecilie Heggelund, (36 ára) býr í næsta húsi við einbýlishúsið þar sem líkið fannst, í miðbæ Borkenes. Hún segir að það að finna látinn einstakling, veki ekki ótta hjá henni. ,,Þessi líkfundur breytir engu fyrir okkur sem búum hér. Okkur mun samt finnast öruggt að búa hér, eins og áður, “segir Heggelund. – En þegar við fáum litlar upplýsingar frá lögreglunni, verður fólk forvitið og vangaveltur vakna, segir hún.
Hún segist hafa orðið fyrir ónæði á Facebook af fólki sem hún þekkir ekki neitt. ,,Það spyr hvað hafi gerst? Ég held að það komi til af því að lögreglan hefur sagt svo lítið og það gerir fólk forvitið,“ segir Trude Heggelund.
Frank Magne Sletten hjá lögreglunni skilur að litlar upplýsingar hafi leitt til vangaveltna. ,,En því miður getum við ekki gefið frekari upplýsingar eins og er,“ segir hann. Líkið er nú til krufningar á háskólasjúkrahúsinu í Noregi. Lögregla býst við að frumskýrsla um krufninguna verði tilbúin fyrir n.k. þriðjudag og býst við að hafa þá aðeins meiri upplýsingar um málið.