Fulltrúar bæjarstjórnar Vesturbyggðar og sveitarstjórnar Tálknafjarðarhrepps mættu á fund umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í dag til að fara yfir þá alvarlegu stöðu sem uppi er vegna vegalagningar Vestfjarðavegar um Gufudalssveit.
Á fundinum var komið á framfæri við nefndina áherslum og hagsmunum sveitarfélaganna um mikilvægi þess að farið verði í vegabætur á Vestfjarðavegi strax.
Var nefndin upplýst um að frekari tafir á vegalagningu geti haft alvarleg áhrif fyrir Vestfirði.
Þá voru nefndarmenn upplýstir um þau samskipti sem sveitarfélögin tvö ásamt Fjórðungssambandi Vestfjarða hafa átt við sveitarstjórn Reykhólahrepps á síðustu mánuðum.
Fulltrúar sveitarfélaganna tveggja lögðu áherslu á að áfram yrði unnið með Þ-H leiðina, þar sem undirbúningur vegna þeirrar vegalagningar er lengra á veg komin en undirbúningur vegna R-leiðarinnar en Vestfirðingar geta ekki beðið lengur eftir fullnægjandi samgöngubótum.
Á fundinum voru ekki teknar ákvarðanir en ljóst er að skera þarf á þann hnút sem enn og aftur er kominn upp í þessu máli.