Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness er harðorður þegar að kemur að því að lýsa gangi mála í kjaraviðræðum. Hann sagði m.a. í viðtali á útvarpsstöð í gær að það væri að styttast hratt í að þessum viðræðum, sem hefur einnig verið nefnd störukeppni, fari að ljúka og að þá taki við hörðustu verkföll seinni tíma með tilheyrandi látum og óþægindum.
Hann var einnig ómyrkur í máli á vef sínum í garð Halldórs Benjamínssonar hjá SA:
,,Í gær var viðtal við Halldór Benjamín framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins þar sem hann sagði að ákvörðun VR, Eflingar og Verkalýðsfélags Akraness hefðu hægt á öllu samningsferlinu og þessar viðræður væru komnar byrjunarrétt. Rétt er að geta þess að þessar viðræður við SA hafa aldrei farið af byrjunarrétt því SA hefur neitað að svara hvert svigrúm til launahækkana sé.
Það sorglega í þessu viðtali var að framkvæmdastjóri SA sagði ósatt í þessu viðtali þegar hann hélt því fram að góður gangur væri í viðræðum við Starfsgreinasamband Íslands og þar væri fundað þétt þessa daganna. Sannleikurinn er hins vegar sá að ekki einn einasti fundur hefur átt sér stað á milli SA og SGS á þessu ári!
Það myndi þýða að lægsti taxti verkafólks sem nú stendur í 266.735 færi uppí 271.802 eða sem nemur 5.068 króna hækkun og eftir skatta myndi þessi launhækkun sem aðildarfélög Samtaka atvinnulífsins telja að sé til skiptanna skila í vasa lágtekjufólks á lægsta launataxta 3.004 krónum.
Er nema furða að maður hafi áhyggjur að það stefni í ein hörðustu verkafallsátök verkafólks í marga áratugi?“ Sagði Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness.