,,Þegar Samfylkingarmenn eru komnir út í horn þá gera þeir lítið úr konum – líklega líkar þeim ekki sterkar konur. Dagur lét að því liggja í kvöldfréttum RÚV að Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi væri ekki sjálfstæð í verkum sínum, heldur hefði hún lúffað fyrir ósýnilegum óvini Samfylkingarinnar sem hann finnur sífellt þegar gefur á bátinn, í Sjálfstæðisflokknum eða Hádegismóum – það er aumkunnarvert.“ Segir Vigdís Hauksdóttir um ummæli Dags B. Eggertssonar í viðtali við RÚV í kvöld.
,,En annars sagði Dagur þetta á Rás 1 kl. 18:00: Ja braggamálinu er lokið, framkvæmdum er lokið, óháðri úttekt er lokið. Núna bíða umbætur og ég held að það sé skilda okkar allra að vinna að því, þar er stjórnkerfið undir og við berum öll ábyrgð á því að tryggja að ferlar séu fyrir hendi, þeim sé fylgt og svona gerist ekki aftur og það er einfaldlega ein af skyldum mínum að fylgja eftir ábendingum innri endurskoðunar og það ætla ég sannarlega að gera.“
– það er líka aumkunnarvert og meira að segja líka ósatt …!!! Braggamálið er rétt að byrja“ Segir Vigdís Hauksdóttir á vef sínum um ummæli Dags B. Eggertssonar í viðtalinu.
Á RÚV kom m.a. fram að hann sem borgarstjóri ætlar ekki að verða við kröfu Sjálfstæðismanna um að víkja úr þriggja manna hópi um braggamálið og sagði að málið einkennist af pólitísku upphlaupi.
,,Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar skilaði í síðasta mánuði svartri skýrslu um braggamálið þar sem meðal annars kom fram að ekki hafi verið farið eftir innkaupareglum borgarinnar eða sveitarstjórnarlögum. Þá hafi borgarráð fengið villandi og jafnvel rangar upplýsingar um stöðu mála en í heild nam framúrkeyrslan tæpum 270 milljónum króna.
„Ég vonast til þess að eiga gott samstarf við hana og aðra í borgarráði því að borgarráð verður sá vettvangur sem við höfum til þess að vinna þetta mál með minnihlutanum,“ sagði Dagur B. Eggertsson í viðtalinu við RÚV um málið og kom þar skýrt fram að Dagur telur ekkert óeðlilegt við það að hann komi að þessari vinnu og fyrir liggur að áður hafði verið hafnað hlutlausri rannsókn á braggamálinu og var vísað til þess að óeðlilegt væri að borgin væri að rannsaka eigin stjórnsýslu.
„Það hefur verið reynt að gera það að einhverju pólitísku upphlaupsmáli en ég held að það tengist frekar því að þetta óvenjulega skref sem Hildur tók, að taka þátt í þessari vinnu, mæltist illa fyrir í ákveðnum hluta baklands Sjálfstæðisflokksins, þeim sem vilja keyra harðlínu í öllum málum og vilja ekki neitt samstarf milli meirihluta og minnihluta en í mínum huga er það gamaldags pólitík þar sem maður nær minni árangri,“ segir Dagur jafnframt í viðtalinu.
Þá segir Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks þessa gagnrýni ranga og áréttar að óeðlilegt sé að borgarstjóri stýri þessari vinnu. „Það er svo mikilvægt að við vinnum vel úr þessu máli því þetta hefur verið mikið í umræðunni. Við þurfum að vinna vel úr því og vinnan þarf að njóta trausts. Við þurfum að komast að niðurstöðu sem er gagnleg fyrir borgarbúa. Við þurfum að fyrirbyggja að þetta gerist aftur og ef að borgarbúar treysta því ekki að við séum að fara inn í vandaða og hlutlausa vegferð þá er þetta sjálfdautt frá upphafi,“ sagði Hildur að lokum.
Tengt efni:
https://www.fti.is/2018/12/22/fjogur-verkefni-borgarinnar-foru-morg-hundrud-milljonir-krona-fram-ur-aaetlun-krafa-um-ad-dagur-b-segi-af-ser/