Hraðakstur á Vesturlandsvegi í Reykjavík
Brot 99 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í austurátt, að Víkurvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.149 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sex óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 113.
Hraðakstur á Hafnarfjarðarvegi í Kópavogi
Brot 103 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í suðurátt, að Fífuhvammi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.356 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sjö óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 116.
Hraðakstur á Reykjanesbraut í Garðabæ
Brot 65 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í suðurátt, að Kauptúni. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 1.006 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Fjórir óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 158.
Vöktun lögreglunnar er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigningaskúrir voru á meðan hraðamælingunni stóð.
Hér má sjá nokkur dæmi um hækkun sekta fyrir umferðarlagabrot frá 1. maí 2018: