• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 12. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Húsnæðismálin ein leysa ekki kjaradeilur

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
26. janúar 2019
in Innlent
A A
0

Það mátti greina í gær vissa bjartsýni um að takast megi að leysa kjaradeilur án harkalegra átaka á vinnumarkaði eftir að víðtækt samkomulag náðist um aðgerðir í húsnæðismálum. Það á að vísu eftir að útfæra þær hugmyndir og fjármagna en kjarni málsins er þó sá, að húsnæðismálin ein leysa ekki þessar deilur.

Verkalýðshreyfingin hefur uppi verulegar kröfur um launahækkanir á hendur atvinnurekendum og um margvíslegar breytingar á skattakerfi og bótakerfum á hendur stjórnvöldum.
Það liggur ekkert fyrir um að sjónarmið atvinnurekenda og verkalýðshreyfingar varðandi launahækkanir séu að nálgast og nokkuð ljóst að innan stjórnarflokkanna verða skiptar skoðanir um hugmyndir ASÍ í skattamálum.
Telja má víst að Sjálfstæðisflokkurinn muni eiga erfitt með að kyngja skattahækkunum svo að dæmi sé nefnt.
Víðtækt samkomulag um aðgerðir í húsnæðismálum er jákvætt og eykur bjartsýni en er þó aðeins eitt skref af mörgum, sem taka verður áður en sést til lands í þessari kjaradeilu.

Húsnæðismálin: Skref í rétta átt

Styrmir Gunnarsson f.v. ritstjóri Morgunblaðsins

Viðbrögð allra þeirra, sem hlut eiga að máli við þeim tillögum, sem kynntar voru í gær um aðgerðir í húsnæðismálum benda eindregið til að þær séu skref  í átt til þess að tryggja farsæla lausn kjaradeilna. Að vísu bara skref en augljóslega mikilvægt. Útfærslan er eftir.
Það eru margir þættir, sem koma inn í þær kjaraviðræður, sem nú standa yfir en augljóslega jákvætt að víðtæk samstaða hefur tekizt um einn mikilvægasta þáttinn.
Vonandi verður það samningamönnum og stjórnvöldum hvatning til að taka djarfar ákvarðanir á öðrum sviðum.
Þetta skref hlýtur að auka bjartsýni um framhaldið.

Frakkland: Gulu vestin hverfa ekki – birtast þau hér?

Gulu vestin hverfa ekki af götum Parísar og annarra franskra borga. Þó hafa þau þegar náð umtalsverðum árangri vegna þess að Macron, Frakklandsforseti, hörfaði með stefnumál sín snemma í þessu ferli. Að þau skuli mótmæla viku eftir viku þrátt fyrir það er vísbending um mjög djúpa og víðtæka óánægju í frönsku samfélagi.
Macron er að leggja af stað í margra vikna ferðalag um Frakkland til Þess að tala við fólk og hlusta á fólk að hans sögn. Hann ætlar að standa fyrir eins konar Þjóðarumræðu. Það er skynsamlegt af hans hálfu og mættu fleiri kjörnir forystumenn fylgja því fordæmi.
Vandinn í vestrænum lýðræðisþjóðfélögum er alls staðar sá sami. Hin nýja stétt, sem Milovan Djilas, greindi í kommúnistaríkjunum fyrir meira en hálfri öld og saman stóð af ráðamönnum kommúnistaflokkanna og embættismanna í þeim ríkjum notaði aðstöðu sína sjálfri sér í hag.
Nú er það sama að gerast með ýmsum hætti í lýðræðisríkjum Vesturlanda. Hér er það fyrirbæri kennt við Kjararáð.
Það verður fróðlegt að sjá, hvort gul vesti birtast hér á næstuvikum.“ Segir Styrmir Gunnarsson f.v. ritstjóri Morgunblaðsins í skrifum um þjóðmál.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Eru vegtollar lausnin?

    Hringveginum verður lokað í báðar áttir

    38 deilingar
    Share 15 Tweet 10
  • Michael Moore fjallar um glæpina sem gerðu Ísland gjaldþrota

    465 deilingar
    Share 186 Tweet 116
  • Strandveiðimenn mótmæla stjórnarandstöðunni við Alþingi, í dag og á morgun

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Ríflega 150% verðmunur á fiski – Veiðigjöld greidd í samræmi við heimatilbúið tombóluverð

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Málþóf minnihlutans stöðvað

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?