Tvö fíkniefnamál komu til kasta Lögreglunnar á Norðurlandi vestra síðast liðna nótt.
Einn aðili var, laust fyrir miðnætti, handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum ávana og -fíkniefna. Þá fundust á honum ætluð fíkniefni. Tveir aðilar voru síðar um nóttina handteknir grunaðir um sölu og dreyfingu á fíkniefnum.
Við húsleit fundust ætluð fíkniefni og gistu mennirnir fangageymslur lögreglu á meðan á rannsókn málsins stóð yfir.
Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 8006005 en í hann má hringja nafnlaust og koma á framfæri upplýsingum vegna fíkniefna.
Umræða