• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 1. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Lögreglumaður talinn hafa brotist inn á heimili sitt

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
22. febrúar 2019
in Ferðaþjónusta
A A
0

Nokkuð reglulega berast lögreglu tilkynningar um innbrot í heimahús á höfuðborgarsvæðinu og ein slík barst nýverið, en þá var tilkynnt um yfirstandandi innbrot í raðhúsi í umdæminu þar sem skuggalegt par á miðjum aldri hafði fundið sér leið inn í húsið gegnum bílskúrinn.
Brugðist var skjótt við og tveir lögreglumenn sendir rakleiðis á vettvang, en samtímis var haft samband við húsráðanda til að upplýsa hann um stöðu mála. Sá var í makindum heima hjá sér þegar hringt var frá lögreglunni og sá enga innbrotsþjófa á heimilinu. Reyndar var maðurinn nýkominn inn eftir að hafa farið í göngutúr með konunni sinni í slagveðri og voru þau klædd í samræmi við það. Hann sagði þau sjálf hafi farið inn um bílskúrinn og nú var ljóst að málið var á misskilningi byggt.
Nágranni mannsins, sem tilkynnti um innbrotsþjófana, hafði farið mannavillt og því var lögreglubílnum með blikkandi ljós snúið við þegar staðreynd málsins blasti við. Því má svo bæta við að húsráðandi í umræddu raðhúsi, sem er reyndar starfandi lögreglumaður á Höfuðborgarsvæðinu, hefur verið duglegur að hvetja nágranna sína til að láta lögreglu vita um grunsamlegar mannaferðir. 
Sá sem hringdi í lögregluna í þessu tilfelli brást því hárrétt við enda er betra að hringja einu sinni of oft í lögregluna með upplýsingar af þessi tagi en einu sinni of sjaldan.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Tugi milljarða til Íran frá Íslandi

    68 deilingar
    Share 27 Tweet 17
  • Norðvestan stórhríð og ekkert ferðaveður

    28 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Einfaldara og fljótlegra að uppfæra ökuskírteini

    72 deilingar
    Share 29 Tweet 18
  • Fiskifræðingur segir kvótakerfið algerlega brugðist og lagt landsbyggðina í rúst

    35 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Skjald­borg um sjöfaldan veikindarétt

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?