• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

,,Félagsmenn í aðildarfélögum ASÍ eru tæplega 133.000 talsins eða um 65% vinnumarkaðarins''

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
1. mars 2019
in Aðsent & greinar, Innlent
A A
0

Við þurfum kerfisbreytingar í átt að meiri sanngirni og réttlæti

        Drífa Snæland formaður ASÍ skrifar

Drífa Snæland formaður ASÍ skrifar

Félagsmenn í aðildarfélögum ASÍ eru tæplega 133.000 talsins eða um 65% vinnumarkaðarins. Fjöldi kjarasamninga eru í gildi innan félaga ASÍ, við einstaka atvinnurekendur, starfsgreinar, samtök atvinnurekenda auk ríkis og sveitarfélaga. Öll félög sem eru með lausa kjarasamninga hafa vísað deilum sínum til ríkissáttasemjara og fer hún því með verkstjórn allra viðræðna sem eru í gangi. Aðildarfélögin eru þó í ólíkum takti og ekkert óeðlilegt við það í jafn stórum samtökum og ASÍ. Hvernig til tekst næstu daga og vikur ræðst af því hversu sveigjanlegir viðsemjendurnir eru en öllum er ljóst að staðan verður alvarlegri með hverjum deginum.
Hingað til hefur skort á skilning á þeirri grunvallarkröfu verkalýðshreyfingarinnar að gera kerfisbreytingar í átt að meiri sanngirni og réttlæti. Þegar forstjóri Haga er með 22 föld laun lægst launaða starfskraftsins innan sama fyrirtækis þarf enginn að vera hissa á ástandinu á vinnumarkaði. Meira að segja fjármálaráherra virðist vera farinn að gera sér grein fyrir þessu samanber bréf til Bankasýslu ríkissins í gær þar sem hann fer fram á endurskoðun launa bankastjóra Landsbankans.
Fjármálaráðherra hefur reyndar ekki svarað því hvað hann telji eðlileg laun bankastjóra í samhengi við til dæmis laun gjaldkera. Frekar er sett út á tímasetningu launaákvarðana. Persónulega finnst mér ágætt að fá þessar hækkanir í miðri kjaradeilu í stað þess að fá þær viku eftir undirritun kjarasamninga. En vonandi veit það á gott að stjórnvöld geri athugasemdir við óeðlilegar og forhertar hækkanir efstu stétta.
Eðli málsins samkvæmt eiga kjaramálin mestan tíma minn um þessar mundir.  Þar fyrir utan hófst stefnumótun fyrir leigufélagið Blævi í vikunni, en stefnt er að því að koma félaginu í gang til að mæta vaxandi þörf fyrir óhagnaðardrifin leigufélög fyrir fólk með meðaltekjur. Deginum í dag er svo varið á Selfossi í góðum félagsskap kvenna í verkalýðshreyfingunni á Suðurlandi. Þar förum við yfir það hvernig rétta megi kynjahlutföllin í hreyfingunni undir yfirskriftinni Konur taka af skarið.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    214 deilingar
    Share 86 Tweet 54
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    48 deilingar
    Share 19 Tweet 12
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    28 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?