Enginn var með allar sex aðaltölurnar réttar auk Víkingatölunnar og flyst því upphæð 1. vinnings, sem nam rúmum 2,8 milljörðum króna, yfir til næstu viku.
Einn var með 2. vinning og hlýtur hann rúmlega 37,6 milljónir í vinning, miðinn var keyptur í Noregi. Þrír voru með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jókernum og hlýur hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir í Happahúsinu, Kringlunni, Reykjavík, einn á Lotto.is og einn í áskrift.
Heildarfjöldi vinninga á Íslandi var 6.083
Umræða