Í október 2018 ógilti Samkeppniseftirlitið samruna sem áformaður var með kaupum Lyfja og heilsu hf. á Opnu ehf. (Apóteki MOS). Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur í dag staðfest þá ákvörðun Samkeppniseftirlitsins.
Lyf og heilsa rekur 30 apótek um landið annars vegar undir heitinu Lyf og heilsa og hins vegar Apótekarinn. Eru Lyf og heilsa einn stærsti lyfjasmásali á landinu. Opna rekur eitt apótek í Mosfellsbæ, Apótek MOS. Það apótek var opnað um mitt ár 2016. Áður en Apótek MOS hóf starfsemi var eitt apótek í Mosfellsbæ, Apótekarinn í eigu Lyf og heilsu. Eru Apótek MOS og Apótekarinn einu lyfjaverslanirnar í Mosfellsbæ í dag.
Rannsókn Samkeppniseftirlitsins sýndi að innkoma Apóteks MOS hafði mjög góð áhrif á samkeppni á svæðinu. Bauð Apótek MOS upp á nýja þjónustu í formi skipulags verslunarinnar og aðstoðar lyfjafræðinga. Einnig var opnunartími lengri en áður hafði tíðkast í Mosfellsbæ. Sýndu gögn málsins að neytendur tóku þessum nýja valkosti vel og hafði samkeppni frá Apóteki MOS veruleg áhrif á rekstur Apótekarans í Mosfellsbæ.
Upplýst var í málinu að Lyf og heilsa setti sig í samband við forsvarsmann Apóteks MOS um möguleg kaup á félaginu og samningar náðust. Ef samruninn hefði orðið að veruleika hefði sú samkeppni sem Apótek MOS veitti umræddu útibúi Lyfja og heilsu horfið.
Rannsókn Samkeppniseftirlitsins leiddi í ljós að lyfsala í Mosfellsbæ er mjög staðbundin. Rannsókn á kauphegðun neytenda ásamt fleiri gögnum málsins sýndi að neytendur kjósa almennt að eiga viðskipti við apótek sem eru sem næst heilsugæslustöðvum/læknastofum eða heimilum þeirra. Á þetta ekki síst við í tilviki aldraðra eða þegar aðkallandi er að fá lyf í hendur. Af þessu leiddi að samruni umræddra apóteka myndi valda viðskiptavinum þeirra verulegu samkeppnislegu tjóni.
Lyf og heilsa kærði ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Féllst nefndin ekki á það með fyrirtækinu að rannsókn eftirlitsins hefði verið gölluð eða að það hefði lagt rangt mat á skilgreiningu markaðar málsins eða samkeppnisleg áhrif samrunans.