• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Skorað á alþingismenn að hafna þriðja orkupakka ESB

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. apríl 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

Samtökin Orkan okkar hafa í dag sent eftirfarandi áskorun á alla þingmenn:

„Ágætu alþingismenn, segið nei við staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 97/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn (þriðji orkupakkinn). Beinið þeim tilmælum til sameiginlegu EES-nefndarinnar að Ísland verði undanþegið innleiðingu þriðja orkupakkans enda er Ísland ekki tengt raforkumarkaði ESB.“
Hægt er að taka þátt í áskoruninni á vefsíðunni www.orkanokkar.is
Greinargerð með áskoruninni:
Ódýr og örugg raforka er undirstaða góðra lífskjara í landinu. Raforkan er afurð náttúruauðlinda landsins okkar og afar mikilvægt að allar ákvarðanir sem teknar eru í raforkumálum þjóni hag þeirra sem hér búa.
Í dag eru 90% raforkuframleiðslunnar í eigu þjóðarinnar, hrein og endurnýjanleg. Raforkuverð er hér mun lægra og stöðugra en almennt í ríkjum ESB. Þetta er einstök og öfundsverð staða en hana þarf að verja. Markmið orkupakkanna er að efla vald ESB í orkumálum á svæðinu, auka markaðsvæðingu og samtengingu raforkukerfa milli landa.
Varast ætti að innleiða löggjöf sem sniðin er fyrir aðstæður í orkumálum sem eru mjög frábrugðnar þeim sem við búum við á Íslandi.
Með orkupökkum ESB skerðist sjálfsákvörðunarréttur Íslands í raforkumálum. Löggjöfin er samin af ESB og tekur því ekki mið af vilja íslenskra kjósenda, auk þess sem hluti löggjafar-, framkvæmda- og dómsvalds í orkumálum flyst úr landi. Orkupakkar ESG grafa því undan sjálfsákvörðunarrétti þjóðarinnar um eigin auðlindir og geta haft ófyriséð áhrif á lífskjör í landinu. Þessi þróun er líka í hrópandi mótsögn við afstöðu almennings og yfirlýsingar sumra stjórnmálaflokka um að ekki skuli framselja vald í orkumálum til erlendra stofnana.
EES-samningurinn hefur frá upphafi verið talinn á gráu svæði gagnvart stjórnarskránni. Með þriðja orkupakkanum er of langt gengið að mati fræðimanna og það á einnig við þótt Ísland sé ekki tengt öðrum löndum með grunnvirkjum eins og sæstreng. Lögmenn sem fjallað hafa um málið fyrir ríkisstjórnina segja um þetta m.a.: „Það breytir því þó ekki að þriðji orkupakkinn verður ekki tekinn upp í íslenskan landsrétt nú, nema hann standist stjórnarskrána.“ – Heimild: Stefán Már Stefánsson, Friðrik Árni Friðriksson Hirst, Álitsgerð um stjórnskipuleg álitamál tengd framsali ríkisvalds til stofnana ESB/EFTA vegna þriðja orkupakka ESB, bls. 24.
Ólíkt Noregi og Liechtenstein er Ísland ekki tengt raforkumarkaði ESB og ætti því að krefjast undanþágu frá skyldu til að innleiða löggjöf ESB um raforkumarkaðinn. Nú þegar eru fordæmi og heimildir fyrir slíkum undanþágum í EES-samningnum. Ísland er t.d. undanþegið innleiðingum laga um jarðgas, skipaskurði og járnbrautir. Samið er um slíkar undanþágur í Sameiginlegu EES-nefndinni.
Utanríkisráðherra hefur nú lagt fyrir Alþingi tillögu til þingsályktunar um að falla frá stjórnskipulegum fyrirvara gagnvart þriðja orkupakka ESB en boðar um leið að löggjöfin verði innleidd í íslensk lög með fyrirvara. Verði þessi leið farin gæti hver sem er kært íslensk stjórnvöld til ESA vegna rangrar innleiðingar á EES-reglum. Af álitsgerð Stefáns Más og Friðriks Árna má álykta að samþykki Alþingi ákvörðun Sameiginlegu EES-nefndarinnar um að fella þriðja orkupakkann inn í EES samninginn, þá verður Ísland að innleiða löggjöf þriðja orkupakkans eins og hún er. Einhliða fyrirvarar eða breytingar af hálfu Alþingis munu falla undir samningsbrot.
„Stjórnskipulegum fyrirvara Íslands verður að jafnaði aflétt með því að Alþingi samþykki ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar með þingsályktun. Ef fyrirvaranum er aflétt, þá öðlast ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar gildi og verður skuldbindandi fyrir Ísland að þjóðarétti í samræmi við ákvæði EES-samningsins, sem m.a. leggur á Ísland skyldu að þjóðarétti til að innleiða viðkomandi ESB-gerðir í landsrétt.“ – Heimild: Friðrik Árni Friðriksson Hirst og Stefán Már Stefánsson. (2019, 19. mars), Álitsgerð um stjórnskipuleg álitamál tengd framsali ríkisvalds til stofnana ESB/EFTA vegna þriðja orkupakka ESB, bls. 24.
Í tilvitnaðri álitsgerð Stefáns Más og Friðriks Árna kemur einnig fram á bls. 24 að hafni Alþingi því að falla frá stjórnskipulegum fyrirvara vegna þriðja orkupakkans, þá fari málið aftur til Sameiginlegu EES-nefndarinnar. Á þeim vettvangi hefjist viðræður og leitast verði við að finna lausnir. Í þeim viðræðum þurfa íslensk stjórnvöld að óska eftir skýrri undanþágu Íslands frá innleiðingu regluverks ESB í orkumálum enda hefur Ísland ekki tengingu við markaðinn. Slík undanþága gæti verið auðsóttari nú en áður m.a. vegna þess að orkumálaráðherra ESB hefur lýst því yfir að þriðji orkupakkinn hafi enga þýðingu á Íslandi.
Þess vegna skora samtökin Orkan okkar á Alþingismenn að hafna þriðja orkupakkanum og beina um leið þeim tilmælum til Sameiginlegu EES-nefndarinnar að veita Íslandi undanþágu frá innleiðingu þriðja orkupakkans í landsrétt á þeirri forsendu að landið er ekki tengt innri raforkumarkaði ESB.
Í dag opnaði Orkan okkar vefsíðuna www.orkanokkar.is þar sem almenning býðst að skrifa undir áskorun til þingmanna um að hafna þriðja orkupakkanum. Á vefsíðunni er einnig að finna upplýsingar um samtökin, rök gegn orkupakkanum, gögn um orkupakkann og annál frétta og greina sem tengjast málinu.

Nánari upplýsingar veita:
Elinóra Inga Sigurðardóttir s: 898 4661
Birgir Örn Steingrímsson s: 898 9654
Bjarni Jónsson s: 864 8063
Frosti Sigurjónsson s: 8974060
Haraldur Ólafsson s: 895 5334
Ingibjörg Sverrisdóttir s: 861 2748
Hjörleifur Guttormsson s: 897 5095
Rakel Sigurgeirsdóttir: s: 849 7716
Um Orkuna okkar:
Samtökin Orkan okkar leggja áherslu á að ákvarðanir í orkumálum Íslands séu teknar af Alþingi og innlendum stjórnvöldum. Samtökin voru stofnuð í október 2018 til þess að kynna rökin gegn frekari innleiðingu orkulöggjafar ESB hér á landi. Samtökin eru opin öllum sem vilja styðja málstaðinn. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu samtakanna: www.orkanokkar.is
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    90 deilingar
    Share 36 Tweet 23
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    182 deilingar
    Share 73 Tweet 46
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?