• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 25. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ráðherra hitti notendur geðheilbrigðisþjónustu á samráðsfundi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
16. maí 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hitti á fundi í heilbrigðisráðuneytinu í vikunni fulltrúa notenda geðheilbrigðisþjónustu. Þetta er í annað sinn sem slíkur samráðsfundur er haldinn en áformað er að halda þá tvisvar á ári. Verið er að ráða fulltrúa notenda inn í geðheilsuteymi Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Á samráðsfundinn að þessu sinni mættu einnig fulltrúar frá geðheilsuteymum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sem sögðu meðal annars frá ráðningu á fulltrúum notenda inn í austur– og vesturteymi heilsugæslunnar. Ráðningaferli stendur yfir og kom fram að úr mörgum góðum umsóknum sé að moða. Ráðning notendafulltrúa inn í teymin byggist á fordæmum frá nágrannaþjóðum þar sem þetta fyrirkomulag hefur reynst vel, bæði gagnvart þeim sem þurfa á þjónustunni að halda og þeim sem veita hana.
Frá samráðsfundi með notendum geðheilbrigðisþjónustu
Uppbygging geðheilsuteyma á landsvísu er stórt skref til aukinnar og bættrar geðheilbrigðisþjónustu við landsmenn og hefur verið eitt af áherslumálum heilbrigðisráðherra. Geðheilsuteymi í einhverri mynd hafa verið sett á laggirnar í öllum heilbrigðisumdæmum landsins. Heilbrigðisráðherra efnir í næstu viku til vinnufundar notenda og fagfólks þar sem fjallað verður um uppbyggingu árangursríkra geðheilsuteyma á landsvísu: „Markmiðið er að tryggja gæði þjónustunnar um allt land og bæta aðgengi fólks að þjónustunni, óháð búsetu“ segir Svandís. Fjallað verður um vinnulag og verkferla, samvinnu heilbrigðisþjónustu og félagsþjónustu og samvinnu notenda og þjónustuveitenda. Auk þessa verður rætt um leiðir til að meta og mæla árangurinn af þjónustu geðheilsuteymanna, því megintilgangurinn er að tryggja að notendur njóti gagnreyndrar meðferðar sem skilar raunverulegum árangri.

Mikilvægt að byggja brýr og draga úr fordómum

Svandís sagði á fundinum að hún legði ríka áherslu á samráð við notendur sem væri mikilvægt og nauðsynlegt, til að mynda þegar unnið væri að stefnumótun. Hún hafi því ákveðið að efna til vinnustofu í byrjun næsta árs með notendum og fagfólki í heilbrigðis- og félagsþjónustu; „þar sem markmiðið er að byggja brýr milli notenda og fagfólks og finna leiðir til draga úr fordómum, byggja upp betri samvinnu allra sem að málinu koma og veita fólki betri þjónustu.“

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Siðblindar konur

    Kona sökuð um kynferðislega misnotkun, barsmíðar, svelti, heilaþvott og fleira

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Húsgagnamarkaðurinn ehf. gjaldþrota

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Verð á eldsneyti lækkar

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    52 deilingar
    Share 21 Tweet 13
  • Karlmaður á fertugsaldri lést í vinnuslysi

    46 deilingar
    Share 18 Tweet 12
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?