• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fyrsti norðurslóðaviðburðurinn í formennskutíð Íslands

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
23. maí 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0
Guðlaugur Þór Þórðarson ræddi við Mike Sfraga, frkvstj. Wilson Center’s Polar Institute
Guðlaugur Þór Þórðarsson utanríkisráðherra tók í dag þátt í ráðstefnu um viðskipti á norðurslóðum sem haldin var í sendiráði Íslands í Washington. Formennska Íslands í Norðurskautsráðinu og efnahagshvatar og fjárfestingar á norðurslóðum voru aðalefni ráðstefnunnar, sem bar yfirskriftina Doing Business in the Arctic. 
Ráðstefnan, sem er fyrsti viðburðurinn sem tengist formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu, var skipulögð af Íslensk-ameríska viðskiptaráðinu í Bandaríkjunum, sendiráði Íslands í Washington, Efnahagsráði norðurslóða og Wilson Center’s Polar Institute í Washington. Þátttakendur voru bæði úr einkageiranum og opinbera geiranum frá Bandaríkjunum, Íslandi, Grænlandi og Noregi.
Guðlaugur tók þátt í pallborðsumræðum um fjárfestingar á norðurslóðum og hélt ræðu um formennskuáætlun Íslands. „Rauði þráðurinn í okkar formennskutíð verður sjálfbær þróun en við leggjum ríka áherslu á allar þrjár stoðir hugtaksins og samspilið þeirra á milli: sterk samfélög, öflugan efnahag og umhverfisvernd. Þessari sýn deilum við með Bandaríkjunum og því sérstök ánægja að þessi fyrsti viðburður sem Ísland tekur þátt í sem formennskuríki skuli eiga sér stað hér í höfuðborg landsins,“ sagði utanríkisráðherra að fundi loknum.
Í Bandaríkjunum er mikill áhugi á fjárfestingum á norðurslóðum, þar á meðal á Íslandi, en undanfarin fimm ár hefur rúmur þriðjungur erlendra fjárfestinga á Íslandi komið þaðan. Þá hafa íslensk fyrirtæki aukið umsvif sín á svæðinu undanfarin ár, til dæmis í sjávarútvegi í Alaska og fraktflutningum til og frá Grænlandi. Áætluð fjárfestingaþörf á norðurslóðum er talin nema um eitt þúsund milljörðum Bandaríkjadala og því ljóst að um veruleg tækifæri er að ræða, ekki síst á sviði innviðauppbyggingar.
Auk þátttöku í ráðstefnunni hélt Guðlaugur Þór fyrirlestur hjá Wilson Center’s Polar Institute-hugveitunni í Washington. Í ávarpi sínu þar fjallaði hann um formennskuáætlunina, stefnu Íslands í norðurslóðamálum, um samstarf norðurslóðaríkja og eflingu Norðurskautsráðsins. Að fundi loknum átti ráðherra fund með aðstoðarráðherra Bandaríkjanna fyrir málefni hafsins, Tim Gallaudet, þar sem þeir ræddu um samstarf um málefni hafsins og norðurslóðir.
Um leið og ráðstefnan fór fram var opnuð sýning á verkum ljósmyndarans Ragnars Axelssonar í sendiráði Íslands. Sýningin, sem heitir Jöklar, er í tilefni af formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu og verður hún opin almenningi um helgar í húsnæði sendiráðsins fram til 11. ágúst 2019.
  • Utanríkisráðherra flytur ávarp í Wilson Center’s Polar Institute
  • Utanríkisráðherra var á meðal þátttakenda á ráðstefnunni Doing Business in the Arctic
  • Sýning á verkum Ragnars Axelssonar var opnuð í sendiráði Íslands í Washington
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    86 deilingar
    Share 34 Tweet 22
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Risagjaldþrot Heima ehf. – Heimahúsið í sama húsnæði

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?