Veðurhorfur á landinu
Austan 3-8 m/s á morgun, en 8-13 með suðurströndinni. Skýjað að mestu og skúrir á víð og dreif, en þurrt og bjart norðaustantil. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast á Norðausturlandi. Spá gerð: 08.07.2019 21:49. Gildir til: 10.07.2019 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag:
Suðaustan og austan 5-10, en 10-15 syðst á landinu. Rigning með köflum um landið sunnanvert, hiti 10 til 15 stig. Þurrt og bjart norðantil með hita að 20 stigum.
Á fimmtudag:
Breytileg átt 3-10. Bjart með köflum norðan og vestanlands, en líkur á skúrum síðdegis. Hiti 13 til 20 stig. Súld á Suðausturlandi og Austfjörðum og svalara.
Á föstudag og laugardag:
Hæg suðlæg eða breytileg átt og skýjað, en úrkomulítið. Hiti 11 til 15 stig. Bjart á köflum á Norður- og Austurlandi og stöku skúrir síðdegis, hiti að 20 stigum.
Á sunnudag:
Sunnanátt með súld og rigningu, en þurrt og hlýtt norðaustantil á landinu.
Á mánudag:
Útlit fyrir suðaustanátt og minnkandi úrkomu. Hiti breytist lítið.
Spá gerð: 08.07.2019 20:08. Gildir til: 15.07.2019 12:00.