Styrmir Gunnarsson, f.v. ritstjóri Morgunblaðsins bendir á að vegna harðra deilna um Orkupakka 3, þá sé ekki um annað að ræða en að fara eftir reglum Sjálfstæðisflokksins sem séu skýrar, um að málið verði að fara í kosningu innan flokksins. Þeim reglum sé ekki hægt að stinga undir stól eins og hann orðar það.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur hrunið að undanförnu og nú fyrir helgi mældist hann með aðeins 19% fylgi og er núverandi forystu kennt um aðallega vegna Orkupakka 3. Fylgið var t.d. 37% þegar að núverandi formaður, Bjarni Benediktsson tók við af Geir Haarde.
þá er stutt síðan að dómsmálaráðherrrann fyrrverandi Sigríður Andersen varð að segja af sér vegna ráðningu dómara við Landsrétt, eftir dóm Mannréttindadómstóls Evrópu, þau mál eru enn óleyst.
Fjöldi þekktra sjálfstæðismanna hefur yfirgefið flokkinn og sumir eftir áratuga samleið með honum, jafnvel í hálfa öld eins og Geir Jón Þórisson t.d. Fari kosning fram eins og reglur flokksins kveða á um, má jafnvel búast við fleiri afsögnum þingmanna og ráðherra sem að kjósa að standa eða falla með Orkupakka 3, fari fram kosning um málið.
,,Deilur meðal sjálfstæðismanna um orkupakka 3 hafa verið harðar og fara harðnandi. Það er kominn tími á að láta lýðræðið ráða för.
Í 6. grein skipulagsreglna Sjálfstæðisflokksins segir m.a.:
„…Miðstjórn er skylt að láta fara fram almenna kosningu meðal flokksmanna um tiltekin málefni berist skrifleg ósk um það frá a.m.k. 5000 flokksbundnum félagsmönnum og af þeim skulu ekki færri en 300 flokksmenn koma úr hverju kjördæmi landsins.“
Þessar reglur eru skýrar. Þeim er ekki hægt að stinga undir stól.
Það blasir við að andstæðingar orkupakka 3 innan Sjálfstæðisflokksins noti næstu vikur til að safna þessum fjölda undirskrifta og knýi með því fram atkvæðagreiðslu meðal allra flokksbundinna meðlima um málið.
Sjálfstæðisflokkurinn er lýðræðislegur stjórnmálaflokkur.“ Segir Styrmir Gunnarsson.
https://gamli.frettatiminn.is/2019/05/03/geir-jon-thorisson-yfirgefur-sjalfstaedisflokkinn-eftir-halfrar-aldar-samleid/