• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 1. september 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Katrín Jakobsdóttir ræður son f.v. ráðherra VG í stól seðlabankastjóra

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
24. júlí 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0
.

Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna og forsætisráðherra hefur  skipað Ásgeir Jónsson í embætti seðlabankastjóra til fimm ára frá og með 20. ágúst 2019. Ásgeir Jónsson er sonur Jóns Bjarnasonar fyrrverandi ráðherra og þingmanns Vinstri grænna.

Seðlabanki Íslands

Embætti seðlabankastjóra var auglýst laust til umsóknar hinn 20. febrúar sl. Umsóknir bárust frá 16 umsækjendum og drógu þrír umsækjendur umsókn sína síðar til baka. Alls voru umsækjendur því 13 talsins, ellefu karlar og tvær konur, skv. vef stjórnarráðsins.
Hæfnisnefnd sem skipuð var samkvæmt lögum um Seðlabanka Íslands mat fjóra umsækjendur, þá Arnór Sighvatsson, Ásgeir Jónsson, Gylfa Magnússon og Jón Daníelsson, mjög vel hæfa til að gegna embættinu.
Forsætisráðherra boðaði alla þessa fjóra umsækjendur, auk þeirra fimm umsækjenda sem metnir höfðu verið vel hæfir, til viðtala þar sem lagðar voru fyrir þá spurningar í fjórum köflum: um reynslu þeirra og þekkingu á fjármálastarfsemi og efnahags- og peningamálum, breytingar á Seðlabankanum, verkefni Seðlabankans og stjórntæki og loks stöðu efnahagsmála og samspil við stjórnvöld og aðila vinnumarkaðarins. Samtals voru lagðar 13 spurningar fyrir umsækjendur í 27 liðum. Í viðtölum við umsækjendur lagði ráðherra, auk þekkingar þeirra á framangreindum atriðum, jafnframt mat á persónubundna þætti umsækjenda, þar með talið stjórnunarhæfileika þeirra og hæfni í mannlegum samskiptum.
Það var mat ráðherra, að loknum viðtölum við umsækjendur og á grundvelli heildarmats á umsóknargögnum þeirra, að framangreindir fjórir umsækjendur, sem hæfnisnefndin hafði metið mjög vel hæfa, stæðu öðrum umsækjendum framar. Í kjölfarið hafði ráðuneytið samband við umsagnaraðila um hvern hinna fjögurra umsækjenda.
Að lokinni þessari skoðun forsætisráðherra og að teknu tilliti til frammistöðu umsækjenda í viðtölum og efni umsagna um þá var það mat ráðherra að Ásgeir Jónsson væri hæfastur umsækjenda til að gegna embætti seðlabankastjóra, sbr. meðfylgjandi rökstuðning vegna skipunar í embætti seðlabankastjóra.
Frá stofnun Seðlabankans árið 1961 hafa 19 einstaklingar verið skipaðir seðlabankastjórar. Af þeim hafa níu lokið prófi í viðskipta- eða hagfræði, fjórir í lögfræði, einn í verkfræði en fimm höfðu ekki háskólamenntun. Af 19 seðlabankastjórum höfðu sjö verið þingmenn eða ráðherrar áður en þeir urðu seðlabankastjórar, fjórir verið bankastjórar í Landsbanka Íslands, þrír starfað innan Seðlabanka Íslands, þrír unnið í stjórnsýslu og tveir verið ráðgjafar í atvinnulífinu.
Ásgeir Jónsson lauk doktorsprófi í hagfræði frá Indiana University í Bandaríkjunum árið 2001 með alþjóðafjármál, peningamálahagfræði og hagsögu sem aðalsvið. Doktorsritgerð Ásgeirs fjallaði um sveiflujöfnun yfir skamman tíma í litlu, opnu hagkerfi. Ásgeir hefur starfað við hagfræðideild Háskóla Íslands frá árinu 2004, fyrst sem lektor og síðan dósent. Hann hefur verið deildarforseti við hagfræðideild frá árinu 2015. Samhliða störfum sínum við Háskóla Íslands hefur Ásgeir meðal annars verið efnahagsráðgjafi Virðingar og Gamma. Hann hefur gegnt öðrum ábyrgðarstörfum, meðal annars sem formaður starfshóps um endurskoðun peningastefnu og verið forstöðumaður í greiningardeild og aðalhagfræðingur Kaupþings og síðar Arion banka á árunum 2004–2011. Á árunum 2000–2004 var Ásgeir sérfræðingur hjá Hagfræðistofnun og samhliða því stundakennari við Háskóla Íslands.
Meðfylgjandi:
Rökstuðningur vegna skipunar í embætti seðlabankastjóra
Mat hæfnisnefndar
Bréf forsætisráðuneytisins til hæfnisnefndar, dags. 1. júlí 2019
Svar hæfnisnefndar, dags. 4. júlí 2019

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Strandveiðibátar fái tíu daga að auki á næsta fiskveiðiári

    Strandveiðibátar fái tíu daga að auki á næsta fiskveiðiári

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • ,,Einn mesti glæpamaður sögunnar hverfur brátt af sviðinu“

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Tuttugu starfsmönnum Play sagt upp

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    168 deilingar
    Share 67 Tweet 42
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    58 deilingar
    Share 23 Tweet 15
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?