• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Jarðskjálfti mældist 3,5 og talsverð virkni

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
21. ágúst 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

 
Alls hafa 32 jarðskjálftar mælst s.l. tvo sólarhringa í Vatnajökli og sá stærsti var 3,5 og mældist hann 4,3 kílómetra Norðaustur af Bárðarbungu klukkan 2.42 s.l. nótt en mikil skjálftavirkni er þekkt á svæðinu.

Skjálftavirkni vikunnar

Um 320 jarðskjálftar mældust með SIL-mælakerfi Veðurstofu Íslands í vikunni, nokkru fleiri en í fyrri viku, þegar um 280 jarðskjálftar mældust. Stærsti skjálfti vikunnar var 3,0 stig að stærð um 12 km norðaustur af Grímsey, 13. ágúst kl 19:36. Engar tilkynningar bárust um að skjálftinn hafi fundist í Grímsey.
Talsvert meiri virkni var á Lokahrygg í Vatnajökli þessa vikuna, borið saman við vikuna á undan en færri skjálftar voru staðsettir í og við Grímsvötn í þessari viku. Fjórir grunnir jarðskjálftar voru staðsettir í Heklu.

Suðurland

Um tugur jarðskjálfta voru staðsettir suðurlandsbrotabeltinu í vikunni, dreifðir um svæðið og allir um og undir einu stigi. Á Hengilsvæðinu voru rúmlega 45 jarðskjálftar mældir, þar af um 30 voru staðsettir í þyrpingu á Mosfellsheiði rétt norðan við Nesjavallaveg, allir skjálftarnir voru undir tveimur stigum. Önnur skjálftavirkni á svæðinu dreifðist í kringum Hengilinn og Hellisheiði.
Fjórir grunnir smáskjálftar voru staðsettir í og við Heklu í vikunni.

Reykjanesskagi

Rúmlega 20 jarðskjálftar voru staðsettir í Reykjanesskaga í vikunni, flestir dreifðust í kringum Kleifarvatn og í fjöllunum þar suðvestur af. Tveir skjálftar voru staðsettir suður af Fagradalsfjalli.
Tæpur tugur skjálfta mældust á Reykjaneshrygg, flestir um 40 km suðvestur af Reykjanestá. Stærsti skjálftinn var 2.7 að stærð en aðrir skjálftar voru um og undir tveimur stigum.

Norðurland

Úti fyrir Norðurlandi voru staðsettir rúmlega 75 jarðskjálftar, þar af voru um 35 skjálfar mældir í skammvinnri hrinu í Öxarfirði. Stærsti skjálftinn var 2,4 að stærð, 14. ágúst kl 20:44. Um 2 km austur af Flatey á Skjálfanda voru staðsettir 13 jarðskjálftar, allir um og undir 1,5 stigum. Aðrir 13 skjálftar voru staðsettir úti fyrir Eyjafirði, flestir um 16 km norðvestur af Gjögurtá. Stærstur skjálftanna var 2,7 stig að stærð, en aðrir voru allir undir tveimur stigum. Tveir skjálftar voru staðsettir lengra úti á Eyjafjarðardjúpi, báðir tæplega tvö stig. Norðaustur af Grímsey voru um 10 skjálftar staðsettir, stærstur þeirra var 3,0 að stærð, þann 13. ágúst kl 19:36. Engar tilkynningar bárust um að skjálftinn hafi fundist.
Á Kröflusvæðinu voru staðsettir átta jarðskjálftar, allir um og undir einu stigi.

Hálendið

Tæplega 100 skjálftar voru staðsettir í Vatnajökli í vikunni, þar af um það bil 20 skjálftar í Öræfajökli, allri um og undir einu stigi. 6 skjálftar voru staðsettir norður af Esjufjöllum, allir undir tveimur stigum og tæpur tugur skjálfa voru staðsettir í kringum Grímsvötn. Á annan tug skjálfta mældust á Lokahrygg og á svæðinu þar í kring. Tveir stærstu skjálftanna voru af stærð 2,8 og voru á um það bil 10 km dýpi, um 6 km norðaustur af Hamrinum. Um tugur skjálfa mældust í Bárðarbungu, allri undir tveimur stigum og átta jarðskjálftar mældust á djúpa svæðinu þar sem að berggangurinn undir Dyngjujökuli beygir. Örfáir smáskjálftar voru staðsettir í bergganginum undir Dyngjujökuli og sömuleiðis í Kverkfjöllum.
Í Öskju mældust 15 jarðskjálftar, flestir í austurbrún öskjunnar, stærsti skjálftinn var 1,5 að stærð í vesturhluta öskjunnar. Um tugur smáskjálfta voru staðsettir í kringum Herðubreið og Herðubreiðartögl. Einn skjálfti var staðsettur vestur af Trölladyngju og einn í Geitlandsjökli í sunnanverðum Langjökli.

Mýrdalsjökull

Í Mýrdalsjökli voru staðsettir fimm jarðskjálftar. Stærsti skjálftinn var 2,0 að stærð, norðarlega í Kötluöskjunni. Skjálftarnir dreifðust um öskjuna og Goðabungu-svæðið. Rúmlega 20 jarðskjálftar mældust á Torfajökulssvæðinu í vikunni, flestir voru staðsettir í tveimur þyrpingum, annarsvegar við vesturbrún öskjunnar og hinsvegar milli Torfajökuls og Kaldaklofsjökuls. Allir skjálftarnir voru um og undir tveimur stigum.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    219 deilingar
    Share 88 Tweet 55
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    53 deilingar
    Share 21 Tweet 13
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    31 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    38 deilingar
    Share 15 Tweet 10
  • Héraðssak­sókn­ari, rík­is­sak­sókn­ari ofl. segi af sér

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?