• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Nýir sjúkdómar á kjúklingabúi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
24. ágúst 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

 
Hæna
Veirusjúkdómarnir Gumboro veiki og innlyksa lifrarbólga hafa greinst í kjúklingum á Rangárbúinu á Hólavöllum í Landssveit. Matvælastofnun hefur sett búið í einangrun með það að markmiði að útrýma sjúkdómunum áður en þeir ná fótfestu hérlendis.
Grunur um smitsjúkdóm vaknaði eftir veikindi og aukin dauðsföll á búinu í lok júlí og þá tilkynnti Reykjagarður hf. málið til Matvælastofnunar. Stofnunin setti flutningsbann á búið og upplýsti aðila sem tengdust búinu og alifuglabændur um málið. Allir flutningar til og frá búinu eru bannaðir nema með sérstöku leyfi stofnunarinnar.
Veikir fuglar greindust með bæði innlyksa lifrarbólgu og Gumboro veiki. Veirusjúkdómarnir voru staðfestir með blóðrannsókn og krufningu. Þeir eru tilkynningaskyldir til Matvælastofnunar.
Báðir sjúkdómarnir finnast eingöngu í fuglum og berst smit ekki í menn eða önnur spendýr. Fólk getur ekki smitast af fuglunum eða við neyslu á kjúklingakjöti.
Veirusjúkdómarnir tveir eru útbreiddir í öllum fjórum húsum búsins sem innhalda tæplega 50 þúsund fugla samanlagt. Kjúklingunum er slátrað undir eftirliti Matvælastofnunar og húsnæði þrifið og sótthreinsað í kjölfarið. Veikir fuglar eru aflífaðir á staðnum og fargað. Smitið virðist bundið við þetta eina bú og ekki er grunur um frekari útbreiðslu. Ekki er vitað með hvaða hætti sjúkdómarnir bárust á búið.
Helsta smithætta er frá fuglum, tækjum og tólum menguðum af fugladriti en fólk getur einnig borið smit á milli búa ef smitvarnir eru ekki virtar. Að fenginni reynslu nágrannalanda er mesta smithættan á búum þar sem sömu flutningstæki eru notuð, t.d. með fóðurbílum, sorphirðu eða sláturbílum. Alifuglabændur eru minntir á að tryggja smitvarnir. Báðar veirurnar eru lífseigar, ónæmar fyrir ákveðnum sótthreinsiefnum og geta lifað lengi í umhverfinu.
Gumboro veiki (e. Gumboro disease / Infectious Bursal Disease – IBD) er bráðsmitandi veirusjúkdómur sem veldur ónæmisbælingu í sýktum fuglum. Þekkt er að innlyksa lifrarbólga komi upp í fuglum smituðum af Gumboro veirunni þótt lifrarbólgan geti komið upp ein og sér. Eingöngu hænsnfuglar geta veikst en aðrir fuglar svo sem kalkúnar eða endur geta verið einkennislausir smitberar fyrir ákveðin afbrigði veirunnar. Ísland hefur fram til þessa verið talið laust við Gumboro veiki.
Innlyksa lifrarbólga (e. IBH – Inclusion Body Hepatitis) er sjúkdómur í eldiskjúklingum sem ekki hefur áður greinst á Íslandi. Hann veldur venjulega veikindum og dauðsföllum í þriggja til sjö vikna gömlum fuglum. Dauðsföll á búinu voru á milli 12% – 23%. Varphænur geta líka smitast og veikindi í fuglum í uppeldi eru þekkt.
Sjúkdómarnir eru landlægir í flestum löndum þar sem alifuglarækt er stunduð. Markmið Matvælastofnunar er að útrýma báðum sjúkdómum hérlendis.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    220 deilingar
    Share 88 Tweet 55
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    53 deilingar
    Share 21 Tweet 13
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    31 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    38 deilingar
    Share 15 Tweet 10
  • Héraðssak­sókn­ari, rík­is­sak­sókn­ari ofl. segi af sér

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?