Skólastjóri Hlíðaskóla segir að eftirlit við skólann verði aukið eftir að tveir menn hafi reynt að tæla nemanda af lóð skólans. Vísir greinir frá þessu.
Í bréfi sem Kristrún Guðmundsdóttir skólastjóri sendi til foreldra kemur fram að atvikið hafi átt sér stað í hádeginu fyrr í dag. Tveir menn hafi verið á sveimi nærri skólanum og hafi lögreglu verið tilkynnt um málið. „Af lýsingu að dæma var annar um tvítugt og hinn um þrítugt. Sá yngri er dökkhærður og var klæddur í rauða hettupeysu en sá eldri skolhærður í skyrtu. Þeir höfðu afskipti af stúlku í unglingadeild og lögðu að henni að koma með sér. Sá yngri er dökkhærður og var klæddur í rauða hettupeysu en sá eldri skolhærður í skyrtu. Þeir höfðu afskipit af stúlku í unglingadeild.“ Kristrún segir stúlkuna hafa brugðist hárrétt við og hrist mennina af sér.
„Lögregla var kölluð til og tók skýrslu af stúlkunni ásamt vinkonu hennar sem hafði sér mennina tilsýndar. Lögregla mun hafa aukið eftirlit í kringum skólann og nágrenni á næstunni. Mikilvægt sé að foreldrar ræði við börnin sín um að fara varlega gagnvart ókunnugum.“ segir í tilkynningu hennar.