• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 19. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ný heimsmynd í mótun

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. október 2019
in Afþreying, Innlent
A A
0

 
Þing Hringborðs Norðurslóða – Arctic Circle hefst í Hörpu að morgni fimmtudagsins 10. október og sækja það um 2000 þátttakendur frá 50-60 löndum. Í 188 málstofum með rúmlega 600 ræðumönnum mun birtast hin nýja heimsmynd sem nú er í mótun þar sem Norðuslóðir eru í vaxandi mæli vettvangur allra helstu forysturíkja veraldar.
Þingið sækir fjöldi forystufólks frá Bandaríkjunum, Rússlandi, Kína, Japan, Kóreu, Frakklandi, Þýskalandi og fleiri ríkjum auk þess sem íslenskir ráðherrar, vísindamenn, umhverfissinnar og stjórnendur fyrirtækja munu taka virkan þátt í þinginu.
Þing Hringborðs Norðurslóða er einnig opið íslenskum almenningi og hafa nokkur hundruð sæti verið tekin frá í þessu skyni. Íslenskir þátttakendur þurfa hinsvegar að skrá sig á vefsíðunni: www.ArcticCircle.org
Meðal ræðumanna á opnunarfundi þingsins verða forsætisráðherrar Íslands, Finnlands og Grænlands, krónprinsessa Svíþjóðar, orkumálaráðherra Bandaríkjanna, ríkisstjóri helsta orkusvæðis Rússlands, utanríkisráðherrar Færeyja og Danmerkur, Norðurslóðafulltrúar Frakklands og Singapúr auk framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar og formanns Inuit frumbyggjasamtakanna.
Á fyrsta degi þingsins tala einnig á aðalfundum þess Norðurslóðafulltrúar Kína og Kóreu; sérstök umræða verður um viðskiptaframtíð Grænlands og vísindaforystu Bandaríkjanna. Á lokafundi þingsins 12. október talar fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
Á þinginu gefst þátttakendum tækifæri til að bera fram spurningar til einstakra ræðumanna og taka virkan þátt í málstofum um fjölþætt efni.
Dagskrá þingsins má nálgast á vefsíðunni: www.ArcticCircle.org en hún er rúmar 100 blaðsíður að lengd.
Einnig gefst þátttakendum tækifæri til að taka þátt í hádegisverðum og móttökum og sækja sýningar og aðra viðburði sem fram fara í Hörpu þingdagana.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Kortisólskortur drepur – sterar bæla kortisól, segir Helga Ágústa innkirtlalæknir

    Líshættuleg líkamsárás er Palestínumenn og Íslendingar hittust

    56 deilingar
    Share 22 Tweet 14
  • ,,Verulega ósmekkleg ummæli frá Hallgrími Helgasyni sem varða við lög“

    103 deilingar
    Share 41 Tweet 26
  • Óvissustig: Viðvaranir frá Veðurstofu

    32 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • ,,Hræðsluáróðri hefur verið beitt eins og svipu“

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Neituðu að taka niður upplogna níðgrein um meint barnaníð

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?