• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 27. janúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Forsætisráðherra flutti ávarp á 20 ára afmæli Samtaka atvinnulífsins

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
18. október 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

 
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, flutti ávarp á ársfundi Samtaka atvinnulífsins þar sem jafnframt var fagnað 20 ára afmæli samtakanna.
Forsætisráðherra ræddi um aðdraganda lífskjarasamninganna, þau verkefni sem eru framundan við að bæta umgjörð kjarasamninga og standa við fyrirheit stjórnvalda um félagslegar umbætur, s.s. lengingu fæðingarorlofs, úrbætur á húsnæðismarkaði, aðgerðir til að sporna gegn félagslegum undirboðum og mansali og skattkerfisbreytingar. Ennfremur ræddi hún um nauðsyn þess að allir aðilar leggi sig fram um að skapa sátt á vinnumarkaði. Þá ræddi hún um mikilvægi þess að atvinnulífið taki virkan þátt í að draga úr losun kolefnis og stuðli að kolefnishlutleysi.
Að lokum ræddi hún um stöðu innflytjenda á íslenskum vinnumarkaði og mikilvægi þess að öll kyn sitji við borðið þegar ákvarðanir eru teknar. Sérstaklega ræddi hún um kynjahallann í æðstu stöðum í íslensku atvinnulífi og gagnrýndi einkageirann fyrir að hafa ekki tekið betur við sér á sviði jafnréttismála. Hún lauk ræðu sinni á eftirfarandi orðum:
„Hér á landi höfum við átt því láni að fagna að undanförnu að við höfum verið að taka framfaraskref, hvort sem er í samskiptum á vinnumarkaði, samstarfi um loftslagsmál eða samstarfi innan stjórnmálanna. Við eigum hins vegar mörg verk eftir óunnin. Gleymum því aldrei að sáttin byggist alltaf á því að við veitum öllum jöfn tækifæri, tryggjum félagslegt réttlæti samhliða blómlegu efnahagslífi og að við göngum ekki á umhverfisleg gæði heldur tryggjum jafnvægi í sambúð manns og náttúru.“
Auk forsætisráðherra flutti Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður Samtaka atvinnulífsins ávarp. Þá fóru Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs SA og Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, yfir farinn veg, það sem hefur áunnist frá 1999 og drógu upp mynd af þeim áskorunum sem eru framundan.
Ræða forsætisráðherra á ársfundi Samtaka atvinnulífsins

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • ,,Ætlum við líka að hamra á frambjóðendum sem hafa farið inn á strippstaði?“

    Fýlustjórnun, þagnarbindindi og hunsun eru gereyðingarvop

    54 deilingar
    Share 22 Tweet 14
  • Efast um réttmæt vinnubrögð atvinnuvegaráðherra

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Hækkun tekju- og eignamarka vegna félagslegra leiguíbúða

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • ,,Sólveig Anna flengdi Hallgrím Helgason á beran bossann“

    94 deilingar
    Share 38 Tweet 24
  • Tesla með falleinkunn í fyrstu aðalskoðun

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?