• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 12. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Kvennafrídagurinn 2019 – Hvenær náum við jafnrétti á vinnumarkaði?

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
24. október 2019
in Aðsent & greinar, Innlent
A A
0

 

Hvenær náum við jafnrétti á vinnumarkaði?

Til hamingju með daginn!

Drífa Snædal, forseti ASÍ og Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB

Á þessum degi fyrir 44 árum lögðu konur niður launuð sem ólaunuð störf til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags kvenna. Samstaða kvenna skilaði mikilvægum breytingum í átt að jafnrétti. En þrátt fyrir að samfélagið hafi breyst verulega á nærri hálfri öld er enn stór hópur kvenna sem býr við launakjör sem duga engan veginn til framfærslu, óásættanlegt starfsumhverfi, vanvirðingu á framlagi þeirra og of langa vinnuviku.
Í dag viljum við beina kastljósinu að stöðu þeirra kvenna sem veita þjónustu eða annast aðra einstaklinga í vinnunni og heima. Þær sinna mikilvægum störfum sem snerta okkur öll, börnin okkar, foreldra, ættingja og vini. Konur sem samfélagið gæti ekki verið án og störf sem myndu setja samfélagið á hliðina ef þær legðu niður störf. Þetta eru til dæmis lægst launuðu störfin í okkar samfélagi, konur sem vinna við umönnun barna í leikskólum, grunnskólum og á frístundaheimilum.
Álag er almennt meira og vinnuskilyrði verri á vinnustöðum þar sem konur eru í meirihluta. Þar fyrir utan treystir um þriðjungur kvenna á vinnumarkaði sér ekki til að vera í fullu starfi, einkum vegna ábyrgðar á umönnun barna og fjölskyldumeðlima eða vegna þess að störfin eru svo erfið. Í samanburði við önnur Evrópulönd eru aðstandendur á Íslandi undir mestu álagi allra vegna umönnunar óvinnufærra ættingja, öryrkja eða aldraðra.
Það skyldi því engan undra að konur 50 ára og eldri eru stærsti hópurinn þegar fjölgun örorkulífeyrisþega er skoðuð. Það skilar samfélagi þar sem konur lifa að meðaltali 66 heilbrigð ár en meðalævilengdin er 84 ár. Karlar fá að jafnaði 71,5 heilbrigð ár en lifa að meðaltali 81 ár. Konur og karlar stóðu nærri jafnfætis hvað heilbrigði varðar fyrir efnahagshrunið en í kjölfar þess byrjaði að halla undan fæti.
Tvímælalaust hafa niðurskurðaraðgerðir í velferðarkerfinu aukið álag bæði í vinnunni og heima. Lágu launin hafa ekki eingöngu áhrif á konur þegar þær eru á vinnumarkaði heldur út ævina enda réttindi þeirra í lífeyrissjóðum lægri.
Nærri hálfri öld eftir fyrsta kvennaverkfallið er framlag kvenna til samfélagsins ekki að fullu metið að verðleikum. Kynskiptur vinnumarkaður er enn helsta ástæða kynbundins launamunar á Íslandi en þar hefur skakkt verðmætamat á vinnuframlagi kvenna mestu áhrifin. Skipulag vinnumarkaðar og samfélagsins skilar neikvæðum áhrifum á fjárhag, heilsu og líðan kvenna. Þvert á það sem margir telja þá kemur jafnrétti ekki af sjálfu sér heldur þarf að berjast fyrir því.
Það er kominn tími til að stjórnvöld og atvinnurekendur grípi til aðgerða til að stuðla að raunverulegu jafnrétti. T.d. með því að létta umönnunarbyrði kvenna vegna barna og ættingja og með því að beina stuðningi þangað sem hans er mest þörf.
Útrýma þarf fátækt með því að hækka lægstu laun verulega og gera þá kröfu að konur geti lifað af grunnlaunum sínum. Við verðum að tryggja starfsumhverfi sem eyðileggur konur ekki fyrir aldur fram og stytta vinnuvikuna hjá öllu launafólki. Þannig byggjum við réttlátara og betra samfélag!
Drífa Snædal, forseti ASÍ
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Eru vegtollar lausnin?

    Hringveginum verður lokað í báðar áttir

    39 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Michael Moore fjallar um glæpina sem gerðu Ísland gjaldþrota

    465 deilingar
    Share 186 Tweet 116
  • Ríflega 150% verðmunur á fiski – Veiðigjöld greidd í samræmi við heimatilbúið tombóluverð

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Strandveiðimenn mótmæla stjórnarandstöðunni við Alþingi, í dag og á morgun

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Veitingahúsið Eyri er fimm stjörnu og er við Hjalteyri

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?