• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 27. október 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Dómsmálaráðherra brugðið við frétt af brottvísun þungaðrar konu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
5. nóvember 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

 

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir dóms­málaráðherra seg­ist ekki geta tjáð sig um ein­stök mál flótta­fólks og hæl­is­leit­enda. En tjáir sig þó lauslega um þetta tiltekna mjög svo umdeilda mál sem hefur farið eins og eldur í sinu um allt þjóðfélagið í dag og m.a. rætt á Alþingi

Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dótt­ur dóms­málaráðherra var brugðið við frétt af máli þunguðu konunnar

,,Ég fékk fregnir af þessu máli í fjölmiðlum í morgun líkt og aðrir. Þó ég geti ekki tjáð mig um einstök mál get ég þó sagt að mér var brugðið líkt og öðrum. Við viljum öll að farið sé varlega þegar um er að ræða þungaðar mæður, börn þeirra, fædd og ófædd.
Almennt er verklagið á þann veg í dag að fengin eru tilmæli frá heilbrigðisyfirvöldum um hvort einhver hætta sé vegna brottfarar þeirra sem um ræðir úr landi. Ef svo er er brottvísun frestað. Það hefur oft orðið raunin, til að mynda vegna þungunar kvenna í þessari erfiðu stöðu.
Ég óskaði eftir upplýsingum um þetta tiltekna mál sem fjallað hefur verið um í dag og fékk þau svör að þeim almennu reglum hefði verið fylgt í málinu.
Komin 9 mánuði á leið og vísað brott af landinu með flugi

Landlæknir hefur engu að síður boðað að skoða skuli verklagið og Útlendingastofnun mun fara yfir gildandi reglur með þeim. Ég fagna því. Það þarf að meta hvort í ljósi þessa máls sé þörf á að breyta reglum eða verklagi. Brýnt er að leiðbeiningar frá heilbrigðisyfirvöldum séu skýrar.
Um þessar mundir er ég að leggja lokahönd á að skipa þverpólitíska þingmannanefnd um málefni útlendinga. Þar verður hægt að fjalla um framkvæmd laganna, mögulegar lagabreytingar með mannúðarsjónarmið til grundvallar, fá gesti og koma með tillögur til úrbóta. Sú vinna er einstaklega mikilvæg.“ Segir Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir dóms­málaráðherra um hið umdeilda mál.
https://gamli.frettatiminn.is/2019/11/05/komin-9-manudi-a-leid-og-visad-brott-af-landinu-med-flugi/

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Lýst eftir  þremur gróðurhúsum

    Lýst eftir þremur gróðurhúsum

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Um þrettán milljarða hagnaður hjá sjávarútvegsfyrirtæki

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Ríkið útvegi 50.000 kaupleiguíbúðir – leiga 100 til 300 þúsund

    42 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • 55,651,000 kr. greitt af 50% láni á Íslandi en 15,838,435 kr. af 100% láni í Færeyjum

    88 deilingar
    Share 35 Tweet 22
  • Rif Restaurant er frábært veitingahús í hjarta Hafnarfjarðar

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?