• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 5. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Moody´s hækkar lánshæfismat Íslands í A2

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
9. nóvember 2019
in Erlent, Fréttir
A A
0

 

  • Meiri lækkun skulda en fordæmi eru um í öðrum ríkjum og styrk umgjörð opinberra fjármála

Matsfyrirtækið Moody’s hækkaði í dag lánshæfiseinkunn ríkissjóðs um eitt þrep í A2 úr A3. Horfur eru stöðugar.
Moody´s tilgreinir tvær meginástæður fyrir hækkuninni; annars vegar umtalsverð og viðvarandi skuldalækkun ríkissjóðs og góð staða í samanburði við önnur ríki með sama lánshæfismat, og hins vegar aukinn viðnámsþróttur efnahagslífs sem eykur þol hagkerfisins gagnvart áföllum. Stöðugar horfur endurspegla væntingar um að áfram verði byggt á þeim árangri í sem náðst hefur.
Í tilkynningu sinni bendir matsfyrirtækið á að skuldir ríkisins hafa lækkað verulega síðan 2011 og frá fjármálahruni mest allra meðal ríkja sem fyrirtækið metur. Bætt umgjörð ríkisfjármála, m.a. með innleiðingu laga um opinber fjármál, hjálpar til við að varðveita þann árangur. Ávinningur af einkavæðingu fyrirtækja í opinberri eigu gæti styrkt efnahagsreikning ríkisins enn frekar að mati Moody´s.
Moody’s hækkaði einnig þak á skuldum og innstæðum í innlendri mynt úr A1 í Aa3. Þak á skuldir í erlendum gjaldmiðli var hækkað í A1 úr A3 og þak á langtíma bankainnstæðu í erlendri mynt var hækkað í A2 úr A3. Þá hækkaði matsfyrirtækið skammtíma einkunn á skuldir og bankainnstæðu í erlendri mynt í P-1 úr P-2.
Lánshæfiseinkunn ríkissjóðs gæti hækkað frekar ef ytri staða þjóðarbúsins batnar markvert og fjárhagslegt svigrúm til að mæta áföllum eykst, t.d. vegna viðvarandi verulegs afgangs á frumjöfnuði, sölu fyrirtækja í opinberri eigu eða verulegri lækkun ríkisábyrgða.
Snörp hækkun skulda hins opinbera, verulegur samdráttur eða önnur efnahagsáföll hefðu neikvæð áhrif á lánshæfismat.
Lánshæfiseinkunn ríkissjóðs hefur haft jákvæðar horfur hjá Moody´s síðan í júlí 2018 en fyrirtækið hækkaði síðast lánshæfiseinkunn ríkissjóðs í september 2016. Einkunn ríkissjóðs er nú sambærileg hjá matsfyrirtækjunum þremur sem meta lánshæfi ríkissjóðs, þ.e. Moody‘s, Fitch og Standard & Poor‘s en tvö síðarnefndu fyrirtækin styðjast við annað bókstafskerfi en Moody‘s.
Lánshæfiseinkunn ríkissjóðs
Moody‘s A2
Fitch A
S&P A
Tilkynning Moody’s vegna lánshæfismats ríkissjóðs

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    83 deilingar
    Share 33 Tweet 21
  • Hvalfjarðargöng eru lokuð

    43 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    179 deilingar
    Share 72 Tweet 45
  • Sex húsleitir og fjöldi í gæsluvarðhaldi vegna skipulagðrar glæpastarfsemi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?