• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Efling boðar kjaraviðræður fyrir opnum tjöldum beint við borgarstjóra

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
20. janúar 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Bréf til borgarstjóra

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar hefur tilkynnt Degi B. Eggertssyni borgarstjóra að Efling muni ekki eiga frekari viðræður við samninganefnd borgarinnar umfram það sem lög krefjast.

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar hefur tilkynnt Degi B. Eggertssyni borgarstjóra að Efling muni ekki eiga frekari viðræður við samninganefnd borgarinnar umfram það sem lög krefjast. Samninganefnd Reykjavíkurborgar dreifði villandi upplýsingum til fjölmiðla af samningafundi hjá Ríkissáttasemjara um samningstilboð Eflingar sem lagt var fram 16. janúar síðastliðinn og braut þannig bæði trúnað og lög.
Samninganefnd Eflingar krefst þess að kjaraviðræður við borgina fari héðan af fram fyrir opnum tjöldum. Þannig er brugðist eðlilega við trúnaðarbroti embættismanna borgarinnar og tryggt að rétt sé farið með kröfur Eflingar.
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar

Efling boðar til opins samningafundar í Iðnó á miðvikudaginn 22. janúar klukkan 13:00 þar sem samninganefnd Eflingar mun kynna tilboð sitt til borgarinnar um sanngjarnan og farsælan kjarasamning sem gildi til loka árs 2022.
Í bréfinu til borgarstjóra segir að Sólveig Anna og samninganefnd Eflingar krefjist þess að Dagur, sem æðsti yfirmaður starfsmanna borgarinnar, axli pólitíska ábyrgð á framgöngu samninganefndar borgarinnar, á þeirri stöðu sem upp er komin í viðræðum vegna þeirra, og á því verkefni að kjaramál félagsmanna Eflingar hjá borginni verði leyst með boðlegum hætti.
Í tilboðinu sem kynnt verður á miðvikudag er fallist á sömu taxtahækkanir og samið var um á almennum vinnumarkaði í apríl síðastliðnum, auk þess sem krafist er nauðsynlegrar og tímabærrar leiðréttingar á láglaunastefnu borgarinnar. Auk þess munu félagsmenn Eflingar hjá borginni veita innsýn í aðstæður sínar og kjör. Á fundinum er borgarstjóra boðið að eiga viðræður við samninganefnd Eflingar og bregðast þar við tilboði hennar. Fullt gagnsæi verður um allt sem fram fer á þeim fundi.
Á þriðjudag mun birtast í dagblöðum opið bréf samninganefndar Eflingar gagnvart Reykjavíkurborg til Dags B. Eggertssonar, en atkvæðagreiðsla um verkfall 1800 félagsmanna Eflingar hjá borginni hefst á hádegi sama dag.
Samkvæmt fyrirliggjandi tillögu munu allir starfsmenn Eflingar hjá borginni fara í verkfall í byrjun febrúar á völdum dagsetningum og í ótímabundið verkfall frá 17. febrúar.

Bréf til borgarstjóra.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    33 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    86 deilingar
    Share 34 Tweet 22
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?