• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 1. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Sterk fjárhagsstaða Garðabæjar

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
17. mars 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Rekstrarafgangur nemur 513 m. kr.

Ársreikningur Garðabæjar fyrir árið 2019, sem lagður var fram á fundi bæjarráðs Garðabæjar 17. mars 2020 lýsir sterkri fjárhagsstöðu sveitarfélagsins. Rekstrarafgangur nemur 513 m. kr. en áætlun ársins gerði ráð fyrir 437 m. kr. rekstrarafgangi. Veltufé frá rekstri er 1.979 m. kr. sem er um 12,5% í hlutfalli við rekstrartekjur.
Betri rekstrarafkoma skýrist fyrst og fremst af 2,8 % hærri rekstrartekjum en áætlun gerði ráð fyrir, en rekstrargjöld fóru 2,5% yfir fjárhagsáætlun.
Rekstur málaflokka er í góðu samræmi við fjárhagsáætlun að viðbættum samþykktum viðaukum sem bæjarstjórn samþykkti á árinu. Rekstrargjöld námu samtals 13,8 milljörðum en áætlun gerði ráð fyrir 13,5 milljörðum króna.
Framkvæmt var fyrir 3.680 m. kr. þar af námu framkvæmdir í A- sjóði 2.952 m.kr. Helstu framkvæmdir ársins voru við grunnskóla 1.541 m.kr. einkum vegna nýbyggingar Urriðaholtsskóla og viðbyggingu við Álftanesskóla. Til byggingar íþróttamannvirkja var varið 633 m.kr. og til gatnagerðar, hljóðvistar og stígagerðar 1.128 m.kr. auk framkvæmda við fjölmörg önnur smærri verkefni.
Kennitölur í rekstri bera vott um trausta fjárhagsstöðu Garðabæjar. Skuldaviðmið nemur 70% og skuldahlutfall 104%. Rekstrarniðurstaða er jákvæð um 3,2% og fjárfesting ársins nam 23,2% af rekstrartekjum.
Veltufé frá rekstri nemur 12,5% og eiginfjárhlutfall er 52%.
Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands voru íbúar í Garðabæ 16.920 þann 1. desember sl. og hefur fjölgað um 3,9% á árinu 2019.
Traust og sterk fjárhagsstaða er undirstaða þess að Garðabær sé vel undir það búinn að mæta þjónustu við fjölgun nýrra íbúa samhliða uppbyggingu nýrra hverfa. Í þriggja ára áætlun sveitarfélagsins er gert ráð fyrir að lokið verði við byggingu fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri, áfram verði unnið að uppbyggingu íbúða- og þjónustukjarna fyrir fatlað fólk. Lokið verði við uppbyggingu bæjargarðs með fjölbreyttri aðstöðu til líkamsræktar, göngu- og skokkstígum. Byggð verður útilífsmiðstöð í samstarfi við Skátafélagið Vífil. Áfram verður unnið að frágangi gatna og göngustíga í Urriðaholti jafnframt því sem unnið verður að viðhaldi gatna í eldri hverfum. Einnig verður á árinu 2020 lokið við framkvæmd verkefna sem kosið var um á árinu 2019 í lýðræðisverkefninu Betri Garðabæ og hafa verið í vinnslu á framkvæmdasviði bæjarins.
Ársreikningur Garðabæjar 2019 – fyrri umræða

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    410 deilingar
    Share 164 Tweet 103
  • Næsta lægð nálgast

    28 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Gay Pride og Menningarnótt færð yfir á 17. júní

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Græðgin er komin út fyrir öll mörk – Launaþjófnaður?

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Covid-bóluefnin eru þau hættulegustu sem finnast segir hjartalæknir

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?