• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 30. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Keilir mikilvæg menntastofnun sem aldrei fyrr

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. apríl 2020
in Ferðaþjónusta, Innlent
A A
0

Ríkið hefur í gegnum árin lagt mun minna til rekstur skólans en til sambærilegra skóla

Keilir mikilvæg menntastofnun sem aldrei fyrr
Margrét Þórarinsdóttir, bæjarfulltrúi Miðflokksins í Reykjanesbæ

Rannsóknir hafa sýnt að grunnskólamenntaðir eru í mestri hættu á atvinnuleysi sama hvernig árar í efnahagslífinu. Þegar efnahagsástand versnar eykst atvinnuleysi meðal þeirra hraðar en hjá þeim sem hafa meiri menntun. Í skarpri niðursveiflu eins og nú er skollin á vegna veirufaraldursins og atvinnuleysi eykst hratt eins og á Suðurnesjum er mikilvægt úrræði að geta boðið upp á nám sem hentar sem flestum. Þeir sem nýta sér það koma þá sterkari inn á vinnumarkaðinn þegar niðursveiflunni lýkur.
Keilir, Miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs á Ásbrú í Reykjanesbæ býður upp á nám fyrir einstaklinga sem hafa ekki lokið stúdentsprófi og geta nemendur að námi loknu sótt um háskólanám hérlendis og erlendis. Keilir er eini skólinn sem býður upp á aðfaranám í samstarfi við Háskóla Íslands og gildir námið til inntöku í allar deildir HÍ. Hér er því verið að skapa nemendum dýrmætt tækifæri til að hefja háskólanám.
Það er mikilvægt að menntastofnun eins og Keilir, sem hefur að mörgu leyti verið leiðandi í kennsluháttum, sé vel í stakk búin að geta tekið við sem flestum nemendum þegar atvinnuleysi stefnir í allt að 20% á Suðurnesjum. Undanfarin misseri hefur Keilir glímt við fjárhagsörðugleika og er brýnt að mæta þeim vanda. Læra þarf af mistökum og greina ástæður skuldasöfnunar.
Fjárhagsleg endurskipulagning er hafin og verður ríkisvaldið að koma að þeirri vinnu. Miðflokkurinn ásamt stjórnarandstöðunni lagði til aukafjárveitingu til skólans í aukafjárlögum sem voru samþykkt á Alþingi fyrir skömmu. Tillagan fékk ekki brautargengi og var felld af ríkisstjórnarflokkunum, Vinstri-grænum, Sjálfstæðisflokki og Framsókn. Voru það enn ein vonbrigðin fyrir Suðurnesin. Nú þegar tekjur sveitarfélaganna dragast hratt saman og útgjöld aukast vegna atvinnuleysis hafa sveitarfélögin á Suðurnesjum takmarkaða getu til þess að koma að fjárhagslegri endurskipulagningu Keilis eins og óskað hefur verið eftir. Enda ekki alveg ljóst hvort að þær hugmyndir sem lagðar hafa verið fram samræmist lögbundnu hlutverki sveitarfélaga.
Ríkið hefur í gegnum árin lagt mun minna til rekstur skólans en til sambærilegra skóla t.d. á höfuðborgasvæðinu. Nú kallar atvinnuástandið á Suðurnesjum á að hér verði látið staðar numið og ríkið skapi Keili sömu rekstrarforsendur og sambærilegir skólar njóta. Komið er nóg af fögrum fyrirheitum ríkisvaldsins til Suðurnesja án innistæðu. Keilir er mikilvæg menntastofnun sem aldrei fyrr.
Höfundur:  Margrét Þórarinsdóttir, bæjarfulltrúi Miðflokksins í Reykjanesbæ

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Hverjir eiga Ísland? – Nýríkir milljarðamæringar

    122 deilingar
    Share 49 Tweet 31
  • Þessir fengu 4200 íbúðir og einbýli Íbúðarlánasjóðs – Verð frá einni milljón

    833 deilingar
    Share 333 Tweet 208
  • Lögreglan leitar tveggja manna

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    57 deilingar
    Share 23 Tweet 14
  • Bankarnir hóta viðskiptavinum

    528 deilingar
    Share 211 Tweet 132
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?