Tryggingafélagið Vörður hefur ákveðið að lækka iðgjöld allra trygginga einstaklinga og heimila í maímánuði um 33%. Rekja má lækkunina til færri tjónatilkynninga í mánuðinum sökum áhrifa og útbreiðslu kórónuveirunnar.
Þetta segir Guðmundur Jóhann Jónsson, forstjóri Varðar, í Morgunblaðinu í dag. Mun lækkunin ná til liðlega 55 þúsund viðskiptavina Varðar, en lögð er áhersla á að hún nái til allra einstaklinga í viðskiptum hjá fyrirtækinu.
Að sögn Guðmundar hefur veruleg breyting orðið á tjónamynstri fólks allt frá því að kórónuveiran fór fyrst að gera vart við sig hér á landi. „Fólk er mikið til heima hjá sér og það breytir tjónamynstrinu. Við erum almennt að sjá færri tjón,“ segir Guðmundur í viðtalinu við Mbl.