• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 7. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Sláið í klárinn það liggur á

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
21. apríl 2020
in Ferðaþjónusta, Innlent
A A
0

Álverið í Straumsvík er algjört ankeri í atvinnulegu tilliti

Sláið í klárinn það liggur á
Sigurður Þ. Ragnarsson Bæjarfulltrúi Miðflokksins í Hafnarfirði, skrifar
Sláið í klárinn það liggur á

Þannig týnist tíminn þegar ekkert gerist. Hafnfirðingar með Álverið í Straumsvík í túnfætinum bíða í ofvæni eftir viðbrögðum ríkisstjórnarinnar og Landsvirkjunar vegna gríðarlegs rekstrartaps álversins. Vart þarf að minna á að álverið tapaði um 13 milljörðum króna á síðasta ári, eða rúmum milljarði á mánuði. Þetta gerist þrátt fyrir að þar á bæ hafi verið ráðist í umtalsverðar hagræðingar og fækkunar á starfsfólki.
Hin  blákalda staðreynd  er að Rio Tinto, eigandi álversins er farinn að skoða mismunandi sviðsmyndir af framhaldinu og því miður eru þar uppi hugmyndir um lokun þess. Slík tíðindi eru uggvænleg enda álverið í Straumsvík algjört ankeri í atvinnulegu tilliti.

Hér er verið að tala um 800 til 1000 manns og tapaðar tekjur

Ef verksmiðjan lokaði  myndu ekki aðeins starfandi launþegar hjá álverinu missa atvinnuna heldur líka fjöldinn allur af störfum er tengjast þjónustu við álverið (afleidd störf) leggjast af með tilheyrandi atvinnumissi .
Hér er verið að tala um 800-1000 manns. Ennfremur myndi Hafnarfjarðarbær verða af hálfum milljarði króna á ári gróflega áætlað. Ef fyrirtækið færi í gjaldþrot yrði Landsvirkjun sennilega af fimmtungshluta af tekjum sínum.
Allt þetta hér að ofan lætur ríkisstjórnin reka á reiðanum og horfir á en lítið gerist. Og á meðan týnist tíminn og að endingu er allt orðið um seinan.
Það hefur vakið athygli mína að bæjarfulltrúar í Hafnarfirði fá flestar þessara alvarlegu fregna í gegnum fjölmiðla. Það er ótækt. Það yrði heldur betur tómahljóð í bæjarsjóði ef tekjurnar af álverinu þurrkuðust út, ekki síst núna þegar allt er stopp vegna Covid faraldursins. Nei slíkt má ekki gerast.
Óvissan vegna kórónaveirunnar (SARS-CoV-2) er þrúgandi. Óvissa þeirra sem reka sveitarfélög og fyrirtæki sem skapa fjölda fólks atvinnu er þrúgandi. Karfan er aðgerðapakki til að tryggja áframhaldandi rekstur álversins í Straumsvík og eyða a.m.k. þeirri óvissu.
Sigurður Þ. Ragnarsson,

Bæjarfulltrúi Miðflokksins í Hafnarfirði
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Traust til Seðlabankans er hrunið

    Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    45 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    123 deilingar
    Share 49 Tweet 31
  • Hægt verði að reka starfsmann án áminningar

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Kröpp og djúp lægð vestur af landinu

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?