• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 30. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Sameignir þjóðarinnar erfast: Sumargjafir Samherjabarna endurspegla gallað kvótakerfi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
19. maí 2020
in Erlent, Fréttir, Innlent, Lífsstíll, Viðskipti
A A
0

Sum börn erfa landið

Mútumál Samherja í Namibíu vakti heimsathygli

Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri hreyfingarinnar, segir að framsal eigenda á eignarhluta sínum í Samherja til barna sína endurspegla galla í kvótakerfinu. „Þetta endurspeglar stórgallað kvótakerfið með óheftu framsali og samþjöppun til stórra fjármagnseigenda.“

Hún segir að koma þurfi í veg fyrir framsal milli kynslóða á eignarhlutum sem byggist á sameign þjóðarinnar. Ásrún Brynja Ingvarsdóttir á RÚV vekur athygli á málinu og fer ítarlega yfir málið á vandaðan og yfirvegaðan hátt og í Þessari mjög góðu greiningu, kemur fram að sum börn erfa landið en ekki öll :  ,,Fram kom í fréttum á föstudag að aðaleigendur Samherja hf., þau Helga Steinunn Guðmundsdóttir, Þorsteinn Már Baldvinsson, Kristján Vilhelmsson og Kolbrún Ingólfsdóttir, hefðu framselt hlutabréfaeign sína í Samherja hf. til barna sinna, samtals 86,5 prósenta hlut í fyrirtækinu.
  • Sjá einnig: Börn stærstu hluthafa fá nær öll hlutabréfin í Samherja

Lilja Rafney gerði þetta að umtalsefni í ræðu sinni á Alþingi undir fundarliðnum störf þingsins. Hún sagði það vera góðan og þjóðlegan sið hér á landi að gefa börnum sínum gjöf í upphafi sumars. „En sumargjafir Samherja til barnanna sinna er kannski í stærri kantinum. Þær nema tugum milljarða króna í tilfærslu frá eigendum Samherja til afkomenda sinna. Þetta endurspeglar stórgallað kvótakerfið með óheftu framsali og samþjöppun til stórra fjármagnseigenda.“

  • Sjá einnig: Mestu fjármunir sem hafa verið greiddir í arf á Íslandi

Lilja segir fjármagn stjórna að stórum hluta hverjir nýti sjávarauðlindina,  hvar hún er nýtt og hvar arðurinn af auðlindinni lendi. „Það er orðin gífurleg samþjöppun í greininni á þessum 30 árum frá því að óhefta framsalið var sett á og fjármagnseigendur hlutabréfa í stórum útgerðarfélögum er í engum tengslum við hagsmuni þjóðarinnar eða íbúa sjávarbyggðanna sem hafa margoft þurft að blæða fyrir þegar lifibrauð þeirra og afkoma fer á einni nóttu. Þetta getur varla talist ásættanlegt við stjórn á sameiginlegri auðlind okkar.“

Komið í veg fyrir eðlilega þróun í sjávarbyggðum

Lilja segir að þegar óhefta framsalið hafi verið sett á með lögum árið 1990 hafi hagræðingarkrafa verið höfð að leiðarljósi. „Að lögmál markaðarins myndu auka hagkvæmni veiðanna en frá þeim tíma hafa allir þessir gallar komið í ljós og komið í veg fyrir eðlilega þróun í sjávarbyggðum landsins,“ segir hún.
„Græðgi, brask og miklir fjármunir hafa runnið frá greininni í óskylda starfsemi. Það er hægt að stýra auðlindinni með öðrum hætti, með nýtingarsamningum og endurúthlutun og koma auðlindaákvæði í stjórnarskrá. Það verður að koma í veg fyrir að svona miklir fjármunir af sameiginlegum auðlindum okkar renni á milli kynslóða sem byggjast á sameign þjóðarinnar.“

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    83 deilingar
    Share 33 Tweet 21
  • Skipulögð glæpastarfsemi – Fimm í gæsluvarðhaldi

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?