• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fiskmjölsverksmiðjur 83% rafvæddar – spöruðu 56,5 milljón lítra af olíu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
24. júní 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0
Fiskmjölsverksmiðjur umhverfisvænni og 83% rafvæddar:

Bræðslurnar spöruðu 56,5 milljón lítra af olíu

Rafmagn uppfyllir nú 83% af orkuþörf fiskmjölsverksmiðja og stefnt er að enn hærra hlutfalli á næstu árum. Átak Landsvirkjunar og Félags íslenskra fiskmjölsframleiðenda sl. þrjú ár, 2017-2019, hækkaði þetta hlutfall úr 75%. Hlutfall rafmagns í orkukaupum fiskmjölsverksmiðjanna hefur þannig farið sívaxandi og hefur á tímabilinu sparað brennslu á 56,5 milljón lítrum af olíu. Við það minnkaði kolefnislosun fiskmjölsverksmiðjanna um 168 þúsund tonn, sem jafngildir akstri 36.295 fólksbíla á einu ári.
Fiskmjölsframleiðendur hafa lengi stuðst bæði við olíu og rafmagn í framleiðslu sinni og keypt svokallað skerðanlegt rafmagn. Framboð á slíku rafmagni er hins vegar takmarkað og því hafa framleiðendur fiskmjöls þurft að reiða sig líka á olíu, með tilheyrandi mengun.
Árið 2017 lýstu Landsvirkjun og FÍF (Félag íslenskra fiskmjölsframleiðenda) því yfir að orkufyrirtækið myndi auka framboð á skerðanlegri raforku eftir föngum, en olía yrði áfram varaaflgjafi fiskmjölsframleiðenda. Þá bauð Landsvirkjun smásölum á raforkumarkaði að semja til lengri tíma en áður vegna áframsölu til fiskmjölsframleiðenda. Það varð fiskmjölsverksmiðjum hvati til að ráðast í þær fjárfestingar sem þurfti til að keyra framleiðsluna á rafmagni.
Skemmst er frá því að segja að vel gekk að fylgja þessu eftir og hafa Landsvirkjun og FÍF því aftur lýst yfir að samskonar fyrirkomulag gildi til næstu þriggja ára. Sem fyrr er markmiðið að gera fiskmjölsframleiðslu umhverfisvænni, draga úr losun CO2 og styðja þar með við markmið Parísarsamkomulagsins og skuldbindingar Íslands samkvæmt því.
Myndatexti: Jón Már Jónsson, formaður Félags íslenskra fiskmjölsframleiðenda og Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, undirrita samkomulag um að stuðla að enn frekari notkun endurnýjanlegrar orku í fiskmjölsiðnaði.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    89 deilingar
    Share 36 Tweet 22
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    181 deilingar
    Share 72 Tweet 45
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?