• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 30. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Sýslumaðurinn stýrir verkefni um að efla og þróa samvinnu á velferð og högum barna

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
18. ágúst 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Sýslumanninum í Vestmannaeyjum hefur verið falið að stýra tilraunaverkefni sem felur í sé að efla og þróa samvinnu sýslumanna, lögreglu, félagsþjónustu og barnaverndar í málum er lúta að velferð og högum barna, með áherslu á vernd barna sem búið hafa við ofbeldi á heimili. Verkefnið er ein af sjö megintillögum aðgerðateymis gegn ofbeldi sem skipað var í maí af Ásmundi Einari Daðasyni, félags- og barnamálaráðherra, og Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, dómsmálaráðherra. Aðgerðateymið skipa Eygló Harðardóttir og Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri.
Arndís Soffía Sigurðardóttir, sýslumaður í Vestmannaeyjum, stýrir verkefninu og Arndís Bára Ingimarsdóttir settur lögreglustjóri og Guðrún Jónsdóttir félagsráðgjafi starfa með henni að verkefninu. Vinnunni er ætlað að bæta verklag og þjónustu gagnvart börnum sem hafa búið við ofbeldi á heimilum sínum. Covid-19 faraldurinn leggst þungt á samfélög og getur falið í sér alvarlega félagslega einangrun. Tölfræði ríkislögreglustjóra á landsvísu sýnir að heimilisofbeldismál jukust um 10% á meðan aðgerðir vegna faraldursins stóðu sem hæst og sömuleiðis fjölgaði tilkynningum til barnaverndar á landsvísu og fleiri börn en áður hringdu sjálf til að greina frá slæmum aðbúnaði sínum.
Liður í tilraunaverkefninu er að kalla fagfólk saman á ráðstefnu til Vestmannaeyja, hlýða á erindi og skapa umræður um það sem betur geti farið í verkferlum og samskiptum á milli umræddra stofna ríkis og sveitarfélaga í þágu barna. Ráðstefnan er fyrirhuguð dagana 3.-4. september n.k.
Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamálaráðherra: „Eitt af þeim verkefnum sem ég setti í forgang þegar ég tók við sem ráðherra var að finna leiðir til þess að láta kerfin okkar tala betur saman og loka gráum svæðum þannig að barnið verði hjartað í kerfinu en ekki öfugt. Það er mjög spennandi að sjá þetta tilraunaverkefni fara af stað í Vestmannaeyjum en ég held að það sé engin betri fjárfesting í íslensku samfélagi en í velferð barnanna okkar.“
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra: „Málefni barna og fjölskyldna eru forgangsmál í mínum huga og í því skyni hækkaði ég fjárheimildir til sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu í mars sl. með því skilyrði að fjármagninu yrði ráðstafað í að stytta biðtíma. Leit ég þar ekki síst til aukinnar skilvirkni og hraðari afgreiðslu á fjölskyldusviði sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu. Tilraunaverkefnið sem ýtt er úr vör nú, er frábært skref í að tryggja frekari samvinnu í fjölskyldumálum milli sýslumannsembætta en einnig við aðrar stofnanir er koma að málefnum barna sem verða fyrir ofbeldi. Um er að ræða mikilvæga eflingu þjónustu við okkar viðkvæmasta hóp. Embættið í Vestmannaeyjum styrkist en um leið dreifist álag milli sýslumannsembætta. Það skilar sér í styttri biðtíma og betri þjónustu við börn og borgara alla.”
Arndís Soffía Sigurðardóttir, sýslumaður í Vestmannaeyjum: „Vestmanneyjar eru tilvalin vettvangur fyrir tilraunaverkefni sem þetta þar sem boðleiðir eru stuttar og aðeins eitt sveitarfélag í lögsagnarumdæmi lögreglu og sýslumanns. Við höfum þegar hafið störf og fundum reglulega í Vestmannaeyjum.“

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Hverjir eiga Ísland? – Nýríkir milljarðamæringar

    115 deilingar
    Share 46 Tweet 29
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    56 deilingar
    Share 22 Tweet 14
  • Lögreglan leitar tveggja manna

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Þessir fengu 4200 íbúðir og einbýli Íbúðarlánasjóðs – Verð frá einni milljón

    830 deilingar
    Share 332 Tweet 208
  • 3.000 manns missa atvinnuna

    111 deilingar
    Share 44 Tweet 28
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?