• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 4. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Lögreglan fær styrk til að taka betur utan um börn og unglinga í viðkvæmri stöðu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
3. september 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fengið 15 milljóna króna styrk sem ætlað er að hjálpa embættinu að sinna auknum forvörnum og stuðningi við börn í viðkvæmri stöðu til að draga úr líkum á ofbeldisbrotum þeirra. Styrkurinn er liður í vinnu aðgerðateymis skipuðu af  Ásmundi Einari Daðasyni, félags- og barnamálaráðherra, og Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, í þeim tilgangi að stýra og samræma vinnu við útfærslu aðgerða gegn ofbeldi á tímum efnahagsþrenginga og áfalla.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur lýst yfir áhyggjum af áhrifum Covid-19 á líðan barna. Breytingar á skólahaldi höfðu án efa mest áhrif á viðkvæmustu hópa barna og framundan er aukin áhætta sem tengist því félagslega álagi sem atvinnuleysi getur haft á fjölskyldulíf. Í því sambandi hefur lögreglan á höfuðborgarsvæðinu haft verulegar áhyggjur af þróun ofbeldisbrota meðal ungmenna,  vegna ofbeldismyndbanda sem ungmenni eru að taka upp og deila á sérstökum vefsvæðum og hins vegar málum þar sem hnífar koma við sögu. Þá sýnir nýleg rannsókn að íslensk ungmenni upplifi frekar ofbeldi en jafnaldrar þeirra í öðrum löndum.
Til að bregðast við þessu hefur lögreglan á höfuðborgarsvæðinu unnið að sérverkefni í vor og sumar þar sem horft er til þess að taka betur utan um börn og ungmenni í viðkvæmri stöðu. Teymi þriggja lögreglumanna hefur sinnt verkefninu auk þess sem ákærendur, starfsmenn miðlægrar rannsóknadeildar og stjórnendur í almennri löggæslu og stoðþjónustu styðja við verkefnið
Verkefnið er þrískipt:

  1. Rannsaka brot ósakhæfra barna og ungmenna í samræmi við fyrirmæli ríkissaksóknara 9/2009.
  2. Að efla samstarf við aðrar stofnanir um forvarnir gegn afbrotum þ.m.t. heilsugæslu,grunn- og framhaldsskóla, tómstunda- og íþróttastarf sveitarfélaga, félagsþjónustu og barnavernd.
  3. Almenn vitundarvakning um þróun ofbeldis og ofbeldismenningu meðal íslenskra   ungmenna í samstarfi við hagaðila og ungmennin sjálf m.a. með því að vinna með   Hinu húsinu og hópnum Ungmenni gegn ofbeldi.

Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamálaráðherra: „Við vitum að þau börn og unglingar sem eru í viðkvæmri stöðu eru líklegri til þess að sæta vanrækslu, félagslegri útilokun, neyta fíkniefna eða verða fyrir ofbeldi vegna þeirra áhrifa sem Covid-19 faraldurinn hefur haft á daglegt líf. Reynsla af faröldrum síðustu áratuga sýnir að börn eru í aukinni hættu á að sæta ýmiskonar vanrækslu og þess vegna er gríðarlega mikilvægt að við stígum þar inn og tökum betur utan um þessa hópa.”
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra: „Markmiðið með þessu verkefni er að hægt verði að grípa tímanlega inn í líf ungs fólks og beina því á rétta braut. Það felast mikill verðmæti í því að koma í veg fyrir að ungt fólk lendi á glapstigum. Samvinna lögreglu og þeirra sem vinna uppbyggilegt félags-, mennta- og tómstundastarf með ungmennum er mikilvægt og forvarnir og upplýsingagjöf til barna og ungmenna lykilatriði til að tryggja velferð og öryggi barna.“

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Hval­fjarð­ar­göng lokuð vegna hjól­reiða­manns – Búið er að loka göngunum aftur

    Hvalfjarðargöng eru lokuð

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Sýklalyfjaónæmar bakteríur (MÓSA) greinast í fyrsta sinn á Íslandi  

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    38 deilingar
    Share 15 Tweet 10
  • Salmonella staðfest

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • ,,Við vitum nákvæmlega hvað mun gerast hér á landi“

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?