• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 9. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

„Tökum lyf og vímuefni úr umferð(inni)” – rauði þríhyrningurinn birst ,,truflaður“ á samfélagsmiðlum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. september 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Samgöngustofa hefur hrint af stað átakinu „Tökum lyf og vímuefni úr umferð(inni)” en því er ætlað að vekja fólk til vitundar um ábyrgð okkar allra og þá miklu hættu sem stafar af akstri undir áhrifum lyfja og vímuefna.
Herferðin er unnin af Tjarnargötunni með ráðgjöf lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Merki herferðarinnar er rauði þríhyrningurinn sem flestir þekkja af umbúðum lyfja sem geta haft áhrif á aksturshæfni fólks. 
Síðustu daga hefur rauði þríhyrningurinn birst ,,truflaður“ á samfélagsmiðlum og á RÚV sem kveikja fyrir herferðina og auglýsingar sem koma svo í kjölfarið.
Þessi kveikja eða formáli hefur heldur betur vakið athygli og einhverjir hafa meira að segja fullyrt að þessar auglýsingar hafi truflað viðkvæma áhorfendur. Allar auglýsingar herferðarinnar hafa farið í gegnum próf og fengið vottorð þess efnis að þær eru ekki flogavaldandi.
Akstur undir áhrifum lyfja og vímuefna vandamál
Það er staðreynd að fleiri ökumenn eru teknir fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna heldur en fyrir ölvunarakstur. Það sem meira er, þetta hefur verið svona síðan árið 2013 og það sem af er þessu ári hafa 83% fleiri verið teknir fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna heldur en áfengis skv. tölum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Undirbúningur þessarar herferðar hefur staðið yfir í um eitt og hálft ár en árið 2018 var versta ár sem við höfum séð hvað varðar lyfja- og vímuefnaakstur.
Tölurnar höfðu hækkað ár frá ári en þegar ljóst var í hvað stefndi árið 2018 varð talsverð þjóðfélagsumræða um þetta „nýja“ vandamál.
Akstur undir áhrifum lyfja og vímuefna er vandamál sem er hulið samfélaginu að miklu leyti og er það von okkar að herferðin veki mikla umræðu og hvetji fólk til að aka ekki undir áhrifum lyfja og vímuefna og að fólk tali við þá aðstandendur sína sem þurfa að taka skilaboðin til sín.
Vefsvæði herferðarinnar er www.urumferd.is
Auglýsingar:
Morgungangan – Úr umferð(inni)
Fyrsti rúnturinn – Úr umferð(inni)
Labba í skólann – Úr umferð(inni)
Ísbíltúr – Úr umferð(inni)

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Íslenskir hermenn sagðir á leið til Finnlands

    Íslenskir hermenn sagðir á leið til Finnlands

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Veiddi slasaðan þorsk – ,,hefur allavega ekki lent á bíl“

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Þúsundum tonna af fiskveiðiauðlind þjóðarinnar sóað

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    98 deilingar
    Share 39 Tweet 25
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?