• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 7. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Vaxandi suðaustanátt, 8-15 m/s eftir hádegi og rigning

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
16. september 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Hugleiðingar veðurfræðings
Skil eru byrjuð að ganga yfir landið og nú i morgunsárið er farið að hvessa af suðri vestast á landinu. Áfram verður vaxandi sunnanátt á landinu og mun vindur ná stormstyrk á nokkrum stöðum vestanlands og á miðhálendinu, einkum á norðanverðu Snæfellsnesi og norðan jökla. Skilunum fylgir einnig rigning, einkum sunnan- og vestantil, en þó mun einhver dálítil væta ná inná norðausturland. Í kvöld snýst síðan í hægari suðvestanátt með skúrum, en léttir til austantil í nótt og fyrramálið.
Fram að helgi er útlit fyrir suðvestan strekkingsvind og áframhaldandi skúrir um landið vestanvert en bjartviðri austanlands. Seinnipart sunnudags er síðan von á myndarlegri lægð að landinu og með henni allhvöss sunnanátt og rigning en er lægðin fikrar sig norðaustur yfir landið þá snýst í norðanátt og slyddu eða snjókomu norðanlands.
Veðuryfirlit
400 km S af landinu er 1029 mb vaxandi hæð sem fer hægt NA og frá henni hæðarhryggur til N. Um 400 km V af Hvarfi er 975 mb lægð sem mjakast A, en 450 km V af Snæfellsnesi er vaxandi lægðardrag sem þokast ANA.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Vaxandi suðaustanátt, 8-15 m/s eftir hádegi og rigning með köflum, en úrkomumeira í kvöld. Snýst í suðvestan 5-10 með skúrum í nótt. Hiti 7 til 11 stig.
Veðurhorfur á landinu
Vaxandi sunnanátt, 13-20 m/s vestantil seinnipartinn, annars 8-15. Rigning sunnan- og vestanlands, en þykknar upp með dálítilli vætu norðaustantil síðdegis. Snýst í hægari suðvestanátt seint í kvöld og í nótt, fyrst vestast. Suðvestan 5-13 á morgun, en hvassara um tíma suðaustanlands. Skúrir á vesturhelmingi landsins, en að mestu léttskýjað austantil. Hiti 6 til 12 stig að deginum.
Spá gerð: 16.09.2020 04:50. Gildir til: 17.09.2020 00:00.

https://www.vedur.is/vidvaranir


Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Suðvestan 5-13 m/s og rigning eða skúrir, en þurrt og bjart að mestu austantil á landinu. Hiti 7 til 13 stig, hlýjast á Norðausturlandi.
Á föstudag:
Suðvestlæg átt, 8-15 m/s og smáskúrir vestantil, en hægari vindur og léttskýjað um landið austanvert. Hiti breytist lítið.
Á laugardag:
Suðvestan 10-18 m/s. Rigning með köflum sunnan- og vestanlands, en hægari vindur, bjartviðri og úrkomulítið norðaustan- og austanlands. Áfram milt í veðri.
Á sunnudag:
Vaxandi sunnanátt með rigningu, víða allhvass vindur um kvöldið. Hiti 6 til 10 stig.
Á mánudag:
Líklega hvöss suðvestlæg eða breytileg átt og rigning um allt land. Útlit fyrir norðlæga átt og slyddu eða snjókomu norðvestantil um kvöldið. Kólnandi veður.
Á þriðjudag (haustjafndægur):
Útlit fyrir stífa norðlæga átt með slyddu eða snjókomu norðantil, en þurrt að kalla sunnanlands.
Spá gerð: 15.09.2020 20:40. Gildir til: 22.09.2020 12:00.
 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Kröpp og djúp lægð vestur af landinu

    Kröpp og djúp lægð vestur af landinu

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    121 deilingar
    Share 48 Tweet 30
  • Loðnukvóti til trillu í krókakerfi – LS bendir á meint óeðlilegt kvótabrask

    55 deilingar
    Share 38 Tweet 7
  • Hægt verði að reka starfsmann án áminningar

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    92 deilingar
    Share 37 Tweet 23
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?