• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 11. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Bankarnir vilja peningana þína

SVÞ-Samtök verslunar og þjónustu setja sér umhverfisstefnu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
14. október 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Umhverfisstefna SVÞ er sett fram í samræmi við tilgang samtakanna sem er m.a. að vinna að almennum og sameiginlegum hagsmunamálum aðildarfyrirtækja og að stuðla að framförum í verslun og þjónustu, bættum starfsskilyrðum, aukinni arðsemi og samkeppnishæfni.
Það er meginmarkmið umhverfisstefnu samtakanna að vera aðildarfyrirtækjum okkar og atvinnulífinu öllu góð fyrirmynd í umhverfismálum og sjálfbærni, og að leiðbeina, fræða, hvetja og styðja við aðildarfyrirtæki í málaflokknum enda sé ekki síst skýr ávinningur af því fyrir aðildarfyrirtæki í formi betri afkomu, aukinnar starfsánægju starfsfólks og bættrar ímyndar.
Umhverfisstefnan tekur til annars vegar til innri starfsemi skrifstofu SVÞ og hinsvegar starfsemi samtakanna gagnvart aðildarfélögum, öðrum aðilum innan Húss atvinnulífsins og atvinnulífinu almennt.
Starfsmenn og stjórn SVÞ skulu kynna sér efni stefnunnar og framfylgja henni, og leita sífellt leiða til umbóta í umhverfismálum.

Markmið

  • Efla umhverfisvitund starfsfólks og aðildarfyrirtækja og hvetja þau bæði til að bera virðingu fyrir umhverfinu og að vera fyrirmynd og hvatning fyrir aðra innan Húss atvinnulífsins og í íslensku atvinnulífi til að gera slíkt hið sama.
  • Endurnýta og endurvinna það sem fellur til í rekstrinum og farga öðru á viðeigandi hátt.
  • Orkunotkun verði haldið lágmarki og umhverfisvænir orkugjafar nýttir.
  • Mengun verði haldið í lágmarki og í framtíðinni útrýmt.
  • Innkaup samtakanna taki mið af umhverfissjónarmiðum og sjálfbærni.
  • Umverfisvitund SVÞ félaga sé efld og að samtökin veiti þeim hvatningu og leiðbeiningar til að gera rekstur sinn umhverfisvænan og sjálfbæran án þess að hafa neikvæð viðskiptaleg áhrif.

Leiðir að markmiðum

  • Gera skal aðgerðaáætlun til eins árs í senn þar sem leiðir að markmiðum fyrir innra starf skrifstofu SVÞ og aðgerðir eru útlistaðar og ábyrgð á árangri skilgreind. Í þessu felast einnig samskipti við aðra starfsemi í Húsi atvinnulífsins, enda er rekstur skrifstofu SVÞ samofinn annarri starfsemi í húsinu.
  • Gera skal aðgerðaáætlun til eins árs í senn þar sem útlistaðar eru aðgerðir samtakanna sem snúa að leiðbeiningu, fræðslu, hvatningu og stuðningi við aðildarfyrirtæki samtakanna.

Ábyrgð

Framkvæmdastjóri SVÞ ber ábyrgð á framkvæmd umhverfisstefnunnar en stjórn skal fylgjast með framkvæmd stefnunnar og endurskoða reglulega. Starfsmenn framfylgja umhverfisstefnunni og hafa hana að leiðarljósi í öllu starfi sínu.

Eftirfylgni og endurskoðun

Umhverfisstefna SVÞ er sett fram til framtíðar en skal endurskoðuð á tveggja ára fresti, eða oftar ef þörf krefur. Aðgerðaráætlanir eru settar fram til eins árs í senn. Árlega skal framkvæmdastjóri gera grein fyrir stöðu umhverfismála í samstæðunni með skýrslu til stjórnar.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Tveir handteknir vegna andláts á Selfossi

    Handtekinn fyrir ofbeldi gagnvart opinberum starfsmanni í Kópavogi

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Stjórn Nemendafélags Háskólans á Bifröst lítur brotin alvarlegum augum

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Fimmtug kona dæmd fyrir að nauðga pilti ítrekað

    57 deilingar
    Share 23 Tweet 14
  • Lögreglan lýsir eftir Gabríel Douane Boama, 20 ára,

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Líkamsárás – gæsluvarðhald

    1 deilingar
    Share 0 Tweet 0
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?